Skírnir - 01.01.1930, Blaðsíða 53
Skirnir]
Merkisár i sögu Alþingis.
47
Ef til vill má deila um það, hvort landið hafi orðið
eitt riki 930 eða það hafi orðið rikjasamband, þar sem
hvert goðorð hafi verið riki út af fyrir sig. Sameigið lög-
gjafarþing, sameiginleg lög, sameiginlegur lögsögumaður,
sameiginleg dómgæzla og sameiginleg framkoma út á við
— orðsendingar norsku konunganna voru bornar upp á
Alþingi — virðist réttlæta þá skoðun, að landið allt hafi
orðið eitt riki. Goðorðin höfðu ekkert vald til að setja sér
reglur fram yfir það, er sýslunefndir hafa nú til að setja
sér reglugjörðir. Hvert goðorð er hluti í allsherjarskipu-
lagi því. er sett var 930. Goðorðunum verður ekki jafnað
til »ríkja« í sambandsríkjum nútímans, því að goðorðin
voru eigi staðbundin og höfðu ekki samskonar sérlöggjaf-
arvald sem »riki« í sambandsríkjunum hafa venjulega.
Þó að aðdáunar sé vert, hvernig íslendingar komu á
á hjá sér allsherjarríki og hversu merkileg lög þeir settu
sér, þá ei eigi við hitt að dyljast, að ýmsir þeir þver-
brestir voru á skipun þeirra, er urðu til þess, að hún féll
i rústir.
Störf Alþingis, bæði löggjöf, dómstörf og lögbirtingar,.
hafa nokkuð verið nefnd. En Alþingi haf'i miklu meiri
þýðingu í íslenzku þjóðlífi en hvert venjulegt lögskilaþing*
Þingvöllur var aðalsamkomustaður landsmanna. Þótt eigi
væri nema lítill hluti bænda (níundi hver maður, er þing-
íararkaupi átti að gegna, og stundum vottar) þingreiðar-
skyldur með goða sínum, þá sóttu sarnt að jafnaði fleiri
Þingið. Goðar höfðu iðulega, ef þeir áttu málum að gegna
á Alþingi, miklu fleiri þingmanna sinna með sér. En þar
að auki riðu ungir menn og konur til Alþingis sér til
skemmtunar og fróðleiks. Þangað komu og skáld, sagna-
nienn og íþróttamenn. Þar hafa kvæði verið flutt, sögur
sagðar og íþróttir sýndar, t. d. glímur. Þangað sóttu jafn-
vel trúðar og loddarar, ölhitumenn, svarðskriðar (þeir, er
fægðu sverð), hrossagæzlumenn og jafnvel göngumenn
(flakkarar), þótt þeim sé lítilli góðvild Iofað í logum. Þar
hafa því frændur og vinir úr fjarlægum héruðum oft fund-
izt. Unga fólkið kynntist þar og var þar því einatt stofnað