Skírnir - 01.01.1930, Blaðsíða 40
34
Merkisár í sögu Alþingis.
[Skirnir
ist hafa verið eingöngu dómstóll og skipuð 36 dómendum.
Nafnið lögrétta mun þó lánað frá Noregi, enda kemur það
fyrir í 226. gr. Gulaþingslaga og er þar sýnilega nafn á
dómstól á Gulaþingi. Þriggja tylfta dómur hefir lögréttan
norska á Gulaþingi víst verið eftir frásögn Egilssögu 56.
kap. En þetta mun líka vera hið eina, sem fengið hefir
verið frá Noregi af fyrirmaelunum um lögréttu. Lögrétta
var, eins og vér þekkjum hana samkvæmt Grágás, skipuð
þrem pöllum. Á miðpalli sátu þeir 39, er með goðorð fóru,
og 9 aðrir (eða 48 samtals), auk lögsögumanns og bisk-
upa. En á hvorum hinna pallanna sátu umráðamenn mið-
pallsmanna, 48 menn á hvorum, eða alls 48X3+3=147.
Af þessu skipulagi má ef til vill ráða nokkuð um upphaf-
lega skipun lögréttu.
Eins og að hefir verið vikið, hafa 70—80 menn á öllu
landinu, og ef til vill nokkuru fleiri, haft einhverskonar
forystu fyrir sveitungum sínum. Og margír hinna voldugri
manna hafa haft mannaforráð út fyrir nágrenni sitt. Hafa
menn, meðan engin lögskipun var komin á, eflaust ráðið
því sjálfir, til hvers höfðingja þeir héldu sig, eins og síðar
varð. Flestallir þeir menn, sem kallað hafa sig forystu-
menn, hafa sótt þingíð 930, og sjálfsagt margir skjólstæð-
ingar þeirra með þeim. Þess má ekki vænta, að þeir, sem
mannaforráð höfðu fengið fyrir 930, hafi verið fúsir að
sleppa þeim, þegar hin nýja skipun kæmist á. Hefir því
þurft að finna einhver ráð til þess að fá þessa menn til
fylgis við hina nýju skipun, því að fylgi þeirra þurfti að
fá til hennar, eða það var að minnsta kosti betra til þess,
að sem flestir væri ánægðir og því friðvænlegra í landi.
Hinsvegar má telja öll likindi á því, að lögrétta hafi verið
frá öndverðu skipuð með likum hætti og hún var eftir
Grágás. Af frásögn Ara um fjórðungaskiftingu landsins,
sem varð mannsaldri eftir setningu Alþingis i öndverðu,
má ráða það, að goðorð í landinu hafi í upphafi verið á-
kveðin 36 — þrennar tylftir, eins og dómendatalan i lög-
réttu á Gulaþingi —, því að Ari segir, að þá hafi goðorð
í Norðlendingafjórðungi verið ákveðin 12, en það er auðr