Skírnir - 01.01.1930, Blaðsíða 372
II
Skýrslur og reikningar.
Hafsteinn Pétursson, fyrv. prestur, Höfn,
Halldór Stefánsson, Fáskrúðsfirði,
Hannaas, Torleiv, professor, Björgvin,
Hermann, Paul, prófessor, Torgau,
Jóhannes Þorkelsson, hreppstjóri, Fjalli,
Jóhann Þorkelsson, trésmiður, ísafirði,
Jóhann Þorsteinsson, præp. hon., Reykjavík,
Jón Guðmundsson, bóndi, Ægissiðu,
Jón Pálmason, bóksali, Blönduósi,
Konráð Konráðsson, læknir, Reykjavík,
Magnús Steinsson, kennari, Eskifirði,
Melsted, Bogi Th., mag. art., Höfn,
Ólafur Halldórsson, konferensráð, Höfn,
Páll Árnason, lögregluþjónn, Reykjavík,
Rósenkranz, Ólafur, háskólaritari, Reykjavik,
Sighvatur Bjarnason, fyrv. bankastjóri, Reykjavík,
Sighvatur Gr. Borgfirðingur, Höfða,
Snorri Jónsson, hreppstjóri, Þverá,
Þórarinn G. Árnason, Miðhúsum.
Fór forseti nokkrum orðum um það, hvílíkt skarð væri höggvið
i hóp félagsmanna með láti þessara mörgu félaga. Höfðu sumir
þeirra fyrrum verið ágætir starfsmenn og styrktarmenn félagsins, og
fimm þeirra heiðursfélagar, þeir Boer, Eiríkur og Valdemar Briem,
Paul Hermann og Ólafur Halldórsson.
Minntust fundarmenn hinna látnu og risu úr sætum sínum.
Forseti lét þess þvi næst getið, að skráðir hefðu verið 36 nýir
félagsmenn síðan á siðasta aðalfundi.
II. Þá las forseti upp ársreikning og efnahagsreikning félags-
ins. Höfðu þeir verið endurskoðaðir án nokkurra athugasemda.
Hreyfði enginn fundarmanna neinum athugasemdum heldur né um-
mælum, og er reikningarnir voru bornir upp til atkvæða, voru þeir
samþykktir í einu hljóði. — Enn fremur las forseti upp reikninga
sjóðs Margrétar Lehmann-Filhé’s og sömuleiðis afmælissjóðs félags-
ins, er einnig höfðu verið endurskoðaðir athugasemdalaust.
III. Þá voru kjörnir endurskoðendur félagsins til næsta aðal-
fundar, samkvæmt uppástungu hinir sömu og verið höfðu.
IV. Þessu næst las forseti upp fundargerð kjörfundar, er hald-
inn var daginn áður, 16. júni. Höfðu þeir forseti og varaforseti báð-
ir verið endurkjörnir með öllum þorra greiddra atkvæða, og sömu-
leiðis þeir 2 fulltrúar, sem skyldu ganga úr fulltrúaráðinu samkvæmt
lögum félagsins, þeir séra Magnús Helgason, fyrverandi skólastjóri,
og Matthías Þórðarson, þjóðminjavörður.
V. Síðan skýrði forseti frá bókaútgáfu félagsins þetta ár. Kæmi
nú 104. árgangur Skirnis og væri hann helgaður minningu 1000 ára