Skírnir - 01.01.1930, Blaðsíða 260
254
Alþingi árin 1798—1800.
[Skírnir
Þessi íjárhæð náði skammt til launa hinna nýju em-
bættismanna, og það því síður, sem nefndin lagði til, að
báðir hinir gömlu skrifarar létu af embættum, en héldu
fullum launum. Við launafúlguna bættist og fyrst um sinn
mikilvægur kostnaðarliður, sem reis af byggingu nýs húss
handa dómstólnum. Þessi liður gat þó ekki talizt afleiðing
af hinu væntanlega nýja skipulagi, því að húsið þurfti aó
reisa, hvort sem var. Bæði fjármálastjórnin og dómsmála-
stjórnin höfðu, áður en nefndin skilaði af sér störfum,
ákveðið að flytja þingstaðinn til Rey-javíkur og byggja
þar nýtt hús handa þinginu, og skrifaði kansellíið stiftamt-
manni um þetta 12. apríl 1800. Var það þui afráðið, án
þess að konungsúrskurður kœmi til, að flytja þingstaðinn.
Nefndin lagði fyrir stjórnina uppdrátt af þinghúsi tvílyftu,
21 al. á lengd, 13 74 al. breiðu og 10 al. háu, og með topp-
risi. Var áætlað, að hús þetta myndi kosta röska 3000 rdl.
Auk þessara tillagna hafði nefndin samið og bar fram
frumvarp um stofnun landsyfirdóms, sem hún kvað mið-
aðan við þörf Iandsmanna og sniðinn eftir stiftsyfirréttun-
um í Noregi, sem stofnaðir voru þar 1797 í stað lögþing-
anna og yfirhirðréttarins. Fyrsta grein frumvarps þessa
hljóðar svo í lauslegri þýðingu:
»Samkoma embættismanna og annarra, sem hingað
til hefir verið háð í júlímánuði við Öxará á íslandi og
borið nafnið Alþingi, skal ekki haldin framar, en vera
með öllu afnumin.«
í greinargerðinni segir, að samkoma þessi hafi allt af
verið gagnslaus, en erfiðleikum bundið að sækja hana,
sökum langra ferðalaga og illrar aðbúðar á staðnum.
í 2. gr. er svo fyrir mælt, að yfirrétturinn og lögþing-
in, sem haldin hafi verið við Öxará, skuli afnumin frá 1.
júlí 1800, og í 3. gr., að í stað þessara dómstóla skuli
stofnaður landsyfirdómur, sem háður skuli i Reykjavíkur-
kaupstað og taka til starfa 8. júh 1800. Og í ástæðum
fyrir þessari grein segir nefndin, að »við Öxará« sé ekki að-
eins einn allra ljótasti staður á landi hér, heldur og hinra
snauðasti að matföngum; aftur á móti sé Reykjavík orðia