Skírnir - 01.01.1930, Blaðsíða 38
32
Merkisár í sögu Alþingis.
[ Skirnir
þingi fimmtudaginn i 10. viku sumars. Líklegt er, að þeir
Úlfljótur hafi einmitt valið þenna dag til hins fyrsta þings.
Fimmtudag 9 vikur af sumri ber árið 930 á 24. júní, og
gæti þá hið fyrsta þing hafa hafizt þenna dag.
Um þingstaðinn er vissara. Ari fróði segir, að Alþingi
væri sett »þar er nú er« (þ. e. á dögum Ara, um og eftir
1100). Er eigi um að villast, að Ari þekkir ekki annan
þingstað en Þingvöll við Oxarc. Hið fyrsta starf manna,
er þeir komu á Þingvöll, var að sjá ráð fyrir sér um þing-
tímann: koma hrossum í gæzlu, gera búðir o. s. frv. Búð-
ir hafa þá engar verið, en tjöld hafa meiri háttar menn
sennilega haft með sér. Nærri má geta, að það hefir ekki
þótt neinum smátíðindum sæta, er allt mannval landsins
kom í fyrsta sinn saman. Þar hittu menn frændur og forn-
vini úr fjarlægum héruðum. Slikt var mönnum nýlunda þá.
Þótt margir hafi eflaust borið saman ráð sín um lög þau,
sem Úlfljótur hafði út og flestum eða öllum stærri mönn-
um hafa þegar verið kunn að miklu leyti, þá hefir þeim
verið hugur á að ræða þau mál við fleiri en héraðs-
menn sina, og þess var nú kostur. Eftir að menn hafa
spurzt almæltra tíðinda, séð ráð fyrir sér og liði sínu um
þingtímann og ef til vill athugað lögin nokkuð í kyrrþey,
hefir samkoman verið sett. Setning þingsins hefir þá, eins
og síðar, verið fólgin í lýsingu griða á Þingvelli, er kallað
var að helga þing. Helgun Alþingis fylgdi goðorði þeirra
niðja Ingólís Arnarsonar. Enginn er því jafnlíklegur til þess
að hafa helgað hið fyrsta allsherjarþing sem Þorsteinn Ing-
ólfsson. Þingið hefir auðvitað verið helgað í nafni hinna
heiðnu goða, Óðins, Þórs, Freys, Njarðar, Freyju o. s. frv.
Ekki er ósennilegt, að blót, og jafnvel mannblót, hafi fram
farið áður en til starfa var tekið, svo að goðin skyldi vera
mönnum holl og hjálpsöm. Slík blót tiðkuðust á þingum á
íslandi, ef ráða má af frásögn Eyrbyggju og Kristnisögu.
Sá, er víg vakti á helguðu þingi, hafði rofið þingfrið og
var »vargur í véum«. Hefir sama friðhelgi hvílt yfir hinni
fyrstu allsherjarsamkomu íslendinga. Hefir Þorsteinn Ing-