Skírnir - 01.01.1930, Blaðsíða 293
Skirnir] Alþingi árið 1845. 287
asson og Jón Jónsson. Nefnd þessi samdi langt álit og
var Helgi Guðmundsson framsögumaður hennar. Nefndin
fór mörgum orðum og fögrum um nauðsyn almennrar
menntunar og að sú menntun yrði almennt hollust, sem
heima yrði fengin i landinu, En henni þótti sem ekki mundi
fært að koma upp slíkum skóla þá í bráð. Hins vegar lagði
nefndin til, að þess yrði beiðzt, að latínuskólinn yrði svo
bættur og aukinn, að hann stæði jafnfætis hinum beztu
samskonar skóium i Danmörku, að prestaskóli yrði settur
á stofn og að forspjallsfræði (sálfræði og hugsunarfræði)
yrði kennd í þeim skóla. Jón Sigurðsson fylgdist með sam-
nefndarmönnum sínum. Sagðist vænta þess, að slík kennsla,
sem beiðzt var, mundi smám saman komast á, og bót yrði
það, ef komið yrði á sérkennslu í íslenzkum lögum við
háskólann í Kaupmannahöfn, eins og konungsfulltrúi hafði
vikið að. Sú kennsla komst nú reyndar aldrei á, þó að oft
væri minnzt á hana. Bænarskrá til konungs samhljóða til-
lögum nefndarinnar að niðurstöðu til var síðan samin, og
varð fullur árangur af, því að latínuskólinn var bættur svo
í aðalatriðum að minnsta kosti, sem farið var fram á, og
prestaskólinn var stofnaður samkvæmt konungsúrskurði 21.
maí 1847, og þar var veitt tilsögn í forspjallsfræðum, eins
og um hafði verið beðið.
Mörg fleiri mál tók þingið til meðferðar, sum að til-
hlutun stjórnarinnar og önnur að tilhlutun einstakra þing-
manna, svo sem um refsilög landsins, fjármeðferð ófjárráða
manna, skattamál o fl. Það má þegar sj'á það, að Jón Sig-
urðsson á þegar á fyrsta þinginu frumkvæðið að stærstu
málunum, verzlunarmálinu og skólamálinu, og að hans
gætir þá þegar yfir höfuð lang mest allra þingmanna í
þeim og fleiri málum.
Þing stóð til 5. ágúst og hélt það 29 fundi. Á þing-
lausnafundi héldu bæði konungsfulltrúi og forseti ræðu í
fundarlok. Forseti (Bjarni amtmaður Thorsteinsson) sagði
af sér þingmennsku sökum sjóndepru og sat eigi á fleirum
þingum. En Bardenfleth var konungsfulltrúi aftur á Alþingi
1847, en ekki síðan, eins og áður er vikið að.