Skírnir - 01.01.1930, Blaðsíða 189
Skírnir]
Alþingi árið 1541.
183
ekki verður frá því skýrt, nema með því að birta það.
Það er svona:
»Guðs miskunn sé með yður og okkur báðum jafnan
nálægt. Vitið, kæri bróðir, að héi fer mjög hryggilega fram,
sem allsmektugur guð vinni bót á. Batnar nokkuð umtal.
En gjörðir eru sem guð veit. Vígslur fara fram sem fyrr.
Hjónabandi er nú ekki sinnt, það sem aldrei hefir skeð
síðan guð skipaði hjónabandið í Paradís. Hvergi eigum vér
kosti inn í hús að koma, heldur förum vér sem einn fá-
tækur maður, sem allsmektugum guði sé lof. Kirkjunnar
silfur og háfur er burt tekið úr dómkirkjunni, látið í eina
kistu og læst í því húsi, sem sjálfur hann sefur. Megið þér
sjálfur sjá meininguna þar til. Bagaldúkar og það annað
clenodium,1) sem vér höfum kirkjunni lagt, er borið hingað
°g þangað. Allir menn þeir, sem koma til staðarins, þeir
eru vel teknir og fá sitt erindi. Hvað undir býr, vitum vér
ekki. Opið bréf sendum vér yður, í hverju hann samþykkir,
Qð vér skulum fá lög og rétt af hverjum manni.2) Er þar
enginn undan tekinm Því þætti oss ráð, ef yður sýndist,
að þér hefðuð heimulegt samtal með yðrum kennimönn-
uni, svo fullkomlega gengi dómur á Torfastöðum eftir
krossmessu um svoddan óhæfur, sem fram fara í kristn-
inni, og sendið yðvarn prest til vor sem fyrst á páskunum
með það skrif, sem þér viljið. Því betur sýnist oss nú
bítíð en ofsíð, ef yður sýnist svo vera mega. Takið nú ráð
nf heilögum anda.« 3)
Svona langt var þá komið milli þeirra. Má ýmislegt
rnða af bréfinu um það, hvað fram hafði farið, þó að ekki
Verði það hér nefnt. Er bréfið allt eins og sárt neyðaróp
þessa blinda en skapmikla öldungs. Nafn Gizurar er ekki
hefnt. »Hann« gat ekki verið nema einn.
Það sem mesta athygli hlýtur að vekja, er niðurlag
bréfsins. Þar er hvorki meira né. minna á prjónunum en
l)að, að Ögmundur vill hafa samtök við Jón biskup um
1) Dýrgripir.
2) Vafalaust bréf Gizurar, DI. X., 563.
3) DI. X., 600.