Skírnir - 01.01.1930, Blaðsíða 64
58
Alþingi árið 955.
[Skírnir
Ef ég geri ráð fyrir, að 25 ár (frá 930 til 955) hafi
liðið frá því, að farið var að nota elzta misseristalið og
þangað til Þorsteinn surtur bætti við sumaraukanum, þá
hefir skekkjan frá réttri árslengd numið samtals 25 X 1.2*22
==31,55 eða tæpum 32 dögum. Sumarmál hefðu komið
rúmum mánuði fyrr en á fyrstu lögsöguárum Hrafns Hængs-
sonar. Hafi Alþingi upphaflega verið háð um 20. júní, sem
líklegt má telja, hefði það um 955 átt að vera um eða
fyrir 20. maí. Er það lítt hugsanlegt, að menn hafi getað
komið svo snemma til Alþingis, svo að einhver ráð hafa
menn orðið að finna til þess að bæta úr þessu.
Það virðíst varla hafa verið um nema tvær leiðir að
velja í þessu máli. Önnur var sú, að bæta einum eða tveim
vikum við tvö misseri, þá er færslan á sumarkomunni var
orðin svo mikil, að eigi var unnt að framkvæma án mik-
illa óþæginda þau verk, sem lagalega voru bundin við
vissan tíma í misseristalinu, svo sem setning Alþingis, vor-
þinga, fardaga 0. fl. Þessum aukavikum hefir þá verið bætt
inn að sumrinu, og Þorsteinn surtur hefir þá eigi gert ann-
að en koma fastri reglu á um það, með hve margra ára
millibili aukavikunni skyldi bætt við, og hvenær að sumr-
inu henni skyldi skotið inn í viknatalið. Jafnframt mun
hann hafa fært einhver sennileg rök fyrir því, að tvö
misseri væri að réttu tali 365 dagar og þess vegna þyrfti
að leggja viku við sjöunda hvert sumar.
Þó að í rauninni sé ekkert því til fyrirstöðu, að menn
hafi snemma ráðið á þenna hátt bót á því, að tvö misseri
voru rúmum degi of stutt, er ég þó við nánari íhugun
kominn á þá skoðun, að sennilegra sé, að hér hafi hin
leiðin verið farin, að láta misseristalið haldast óbreytt, og
sumarkomuna færast fram samkvæmt því, en hinsvegar
hafi menn eftir því sem þörf gerðist flutt Alþingi og önn-
ur tímabundin störf um eina eða tvær vikur í einu. Þessi
skýring svarar betur til ummæla Ara fróða, að þeir merktu
það að sólargangi, að sumar munaði aftur til vors. Þessi
leið út úr ógöngunum var heldur ekki ókunn hér á landi.
Ari fróði getur þess, að árið 999 hafi Alþingi verið flutt