Skírnir - 01.01.1930, Blaðsíða 44
38
Merkisár í sögu Alþingis.
[Skirnir
hafi nokkurn tíma komizt í íslenzk dómsköp. Kviðurinn er
sennilega upprunalegur. Fyrirmynd kunna landsmenn hér
að hafa haft að einhverju leyti frá Vesturlöndum. En þessi
skipun getur líka verið frumleg. Hinar einu beinu uppiýs-
ingar, sem heimildarritin hafa um dómsköp í Úlfljótslög-
um, eru í Melabok. Samkvæmt henni var enn á 14. öld
kunn forsögn ein, er hafa skyldi, þá er lögskil átti af hendi
að inna, svo sem að nefna dómendur, segja fram sök o. s.
frv. Skyldi maður nefna sér að því votta, að hann ynni
eið að baugi (eins og menn unnu samskonar eiða siðar að
bók eða krossi), lögeið, að sök mundi hann svo sækja eða
verja, vætti eða kviðu bera, sem hann vissi sannast og
réttast og helzt að lögum, og kallaði hann sér til hjálpar
um það Frey, Njörð og »Ás hinn almáttka«, sem verið
hefir Óðinn eða Þór. Þessi ákvæði hafa verið jafngömul
þinginu. Þau eru auðsjáanlega ekki þinghelgunarforsögn,
eins og í Melabók segir, heldur eiðsformáli, og hafa þau
öll einkenni slikra forsagna, eins og þær eru í Grágás,
auðvitað með þeim mun, að forsagnir Grágásar eru kristn-
ar, en forsögn Melabókar er heiðin. Ef þessi forsögn er
frá upphafi Alþingis, þá er hún vottur þess, að kviður, en
eigi aðildareiðar, eins og í Noregi, hefir verið sönnunar-
gagn á íslandi þegar frá öndverðu.
Samkvæmt Grágás og íslendingasögunum var sá einn
staður á Þingvelli, er Lögberg var nefndur. Fóru þar fram
ýmiskonar tilkynningar og birtingar. Ekki verður séð, að
þetta heiti sé fengið frá Noregi, eða að samsvarandi skip-
un hafi verið þar höfð að þessu leyti. Birtingar fóru þar
fram í lögréttu, að því er kunnugt er. Á íslenzkum þingum
var yfirhöfuð einn staður, þinghóll eða þingbrekka, þar
sem birtingar ýmiskonar fóru fram. Á Alþingi var lögberg
þessi staður. Sennilega er það jafngamalt þinginu.
Þá eru vorþingin. Þau voru eftir Grágás 13, í hverj-
um landsfjörðungi 3, nema í Norðlendingafjórðungi, þar sem
þau voru 4. En það varð fyrst eftir 965, er landinu var
skift í fjórðunga. Þangað til virðast þau hafa verið 12.
Voru 3 goðorð í hverju vorþingi. Þar voru dómar dæmd-