Jörð - 17.06.1941, Side 98
ar inngjafir af hinum nýtilkomnu töfrakrystöllum. Sjúk-
lingarnir hika ekki heldur, því þeim er kunnugt um, að
Tom Spies er sjálfur sinn eigin Styrhjörn. Þó eru þeir
að nokkru leyti tilraunagrísir hans, en þeir vita það og
taka með eldmóði sinn þátt í herferðinni gegn hungur-
vofunni; bræðralagshugurinn, sem Spies lætur alveg
stjórnast af, en er svo fágætur orðinn í læknastéttinni,
altekur einnig sjúklinga hans.
Stundum tekur Spies aftur lækningu sína, til þess nefni-
lega að staðfesta útkomuna, líkt og maður prófar frá-
drátt með samlagningu og deilingu með margföldun. En
auðvitað hætir hann tvöfalt úr þvi á eftir, því hann út-
vegar margoft sjúklingum sínum vinnu, þegar þeir eru
albata og vita orðið, hvað til friðar lieyrir.
Fyrir tveim árum rak liann út „sjö illa anda“ úr manni,
sem auðvitað var mjög illa haldinn. Hann var alveg lyst-
arlaus, svo gott sem svefnlaus, öldungis afllaus. Melting-
in hafði löngum verið í ólagi, augun verkjaði og klæj-
aði. Honum fannst hann skríða allur i óværu. Sinadrætt-
ir í fótleggjunum. Fyrst hélt Tom honum í tilrauna skyni
á því fæði, er hann hafði haft. Svo tók liann að skjóta
sínum blessuðu vígðu silfurhnöppum, hverjum á fætur
öðrum og liafði draug i skoti. Fyrst voru manninum gefn-
ir nikótínsýruskammtar, þá thiamin og svo i röð ribo-
fJavin, pyridoxin, hreint A-fjörefni, askorbsýra (C-fjör-
efni) og seinast adelinsýra. Að þessu loknu var maður-
inn sem endurborinn.
Þetta þýðir elvlci eingöngu það, að beriberi, pellagra,
skyrljjúgur & Co. Jiafi nú verið svipt verzlunarleyfi, held-
ur er engu minna vert um nýja, undursamlega útsýn til
fyrirlieitins lands, sem mannkyninu er hér með veitt:
heimslca, leti, kjarkleysi eru hér að verulegu leyti að
hljóta ráðningu sína og' vonandi lækning að sama skapi.
Á Hillman’s-spítala sá ég ljörn, er voru líkust niður-
heygðum öldungum, er þau komu inn. 1 skóla gátu þau
auðvitað ekkert. Og ég sá þau breytast í venjuleg börn;
sum þeirra komust í úrval skóla sinna.
240
JÖBÐ