Jörð - 17.06.1941, Qupperneq 142
eftirtektarverða bók um Bretland það, er upp skyldi rísa
að styrjöldinni lokinni. Þar segir hann meðal annars: „í
Bretlandi því, er við tekur eftir styrjöldina, má ekkert vera
alveg eins og það var i Bretlandi hinu eldra. Því aðeins
verður oss auðið að valda því, er af oss mun verða kraf-
izt.“ Ég geri þessi orð að mínum. Á íslandi því, er við tek-
ur að styrjöldinni lokinni, má ekkert vera alveg eins og
það er nú, og mun oss ekki liggja minna við en Bretum.
Og þessa reglu verðum vér að hafa liugrekki til þess að
heimfæra upp á allar vorar virðulegu stofnanir, — þann
anda, sem þeim hefir stýrt, þær aðferðir, sem þær hafa
beitt. Og mennina, sem liafa runnið skeið sitt á enda, hinn
úrræðalausa, sérgóða sótthitalýð. Framundan er tímabil
mikillar haráttu og mikilla fórna. En það er ekki til það
harðrétti, sem íslendingar eru ekki tilbúnir að þola fyrir
frelsi sitt og menningu, ef það kemur réttvíslega niður,
og ef það hugsjónatakmark, sem keppt er að, það verð-
mæti og lífsöryggi, sem skapað er með fórnunum, er allra
eign í jöfnum mæli og allra blessun. Svo innilega leiðir eru
menn orðnir á hinni þjóðsundrandi streilu, sem aðeins er
vatn á myllu fáeinna útvaldra, að menn þrá af heilum
huga þann lúðurhljóm, sem kveðji þá til sameiginlegra
átaka og fórna fyrir varanlegri uppbyggingu atvinnulifs,
rnenningar og stjórnarfars í landinu. Það er þetta, sem
hugsandi og óspilltir menn í landinu vilja, af því að þeir
vita, að vér eigum ekki um annað að velja, eða bíða tjón
ella, sem ekki verður hætt.
G HEFI óbilandi trú á dómgreind og andlegri heil-
brigði alþýðumanna á íslandi. Þess vegna hefi ég
einnig óhifandi trú á framtið lands mins og þjóðar niinn-
ar. Og þess vegna vænti ég, að þjóð min firtist ekki við
þessi einföldu aðvörunarorð mín. En einnig liún gerði vit-
urlega i því að ganga nú þegar á einliverja útsýnishæð,
einliverja andlega Hliðskjálf, þaðan sem allvitt sér yfir.
Með línum þessum hefi ég verið að leitast við að fá ein-
hverja til þess að litast um í hinu harða bjarta morgun-
284 j.örö-