Eimreiðin - 01.01.1942, Blaðsíða 74
54
ÍSLAND 1941
EIMnEIÐl>'
(1940: 15—20000). Kjötmagn varð sem næst 5480 tonn. Ekkeit
af kjötframleiðslunni var flutt út nema litið eitt af innýfluW-
Meiri hlutinn var frystur og seldur innanlands, þar á meðal
setuliðinu. — Af ull fóru út á árinu 494 tonn á 2,9 millj- ^1-
(1940: 134 t. á 742 þús. kr.) — Af gærum fóru 466 þús. stk.
á 4,7 millj. kr. (1940: 133 þús. á 1,3 millj. kr.). Var mikið af
ullinni og gærunum frá fyrra ári.
Mjólkurbíium Sunnlendinga, Skagfirðinga og Eyfirðinga
bárust tæpar 18 millj. litra af mjólk á árinu, sem er tæplesa
eins mikið og árið áður (18,2). Af osti var nú sama sem
ekkert flutt út (1940: 36 tonn).
Af refaskinnum fóru út á árinu 4050 stk. á 450 þús. ki•
(3085 á 193 þús.)1) og af minkaskinnum 3252 stk. á 162 ÞllS-
kr. (2013 á 72 þús.).
Garðuppskeran varð með bezta móti, kartöflur 120 þuS-
tunnur (50 þús.) eða nærri því eins og árið 1939, sem þá vaI
125 þús. tunnur.2)
Jarðabætur teljast hafa orðið nær einum þriðja parti niinn1
en árið áður, sem mun stafa af skorti á vinnukrafti fy1'11
sæmilegt verð.
Kornræktin, sem enn er á tilraunastigi, hafði heppnazt veh
þótt misbrestur yrði síðast á þurrkun kornsins.
Viðskiptin. Utanlandsviðskiptin voru aðallega við Bretlanú-
Af innfluttum vörum á árinu fyrir 130 millj. kr., komu vörin
fyrir 85 millj. kr. frá Bretlandi. Frá Ameríku komu vöm1
fyrir nál. 38 millj. Til Bretlands voru seldar vörur fyrir 1
millj. kr. og til ýmsra landa vestanhafs fyrir um 24 niilljón11
kr. — Verzlunarjöfnuður siðustu þriggja ára var þessi:
Innflutt Útflutl
1941: kr. 129 570 000 188 504 000 (Bráðab.tölur)
1940: — 74 210 000 133 030 000 (Verzl.skýrsl.)
1939: — 64 163 000 70 536 000 —
Við samanburð þessara þriggja ára ber að hafa í huga hi®
hækkaða vöruverð og lækkaða peningagildi.
Brezk-íslenzkur fisksölusamningur var undirritaður 5. an-
1) Tölurnar i svigum eiga alls staðar i grein þessari við árið 1910.
2) í yfirlitinu í fyrra hafa misprentast tonn fyrir tunnur.