Eimreiðin - 01.01.1942, Blaðsíða 77
E,MnEIDix
ÍSLAND 1941
57
^naefellsnesi. Var þö áðeins hinn síðastnefndi fullgerður á
'iðna árinu.
^ð hitnveitu Reykjavikur var lítið unnið á árinu sökum þess,
að efnið tii heiinar fékkst ekki flutt.
Siglingar og samgöngur voru með líku móti og árið áður.
Aðalsamgöngurnar voru við Bretland og Ameríku, og önnuð-
Ust brezk skip allmikið af flutningnum til og frá Bretlandi,
en auk þess fluttu islenzk og' færeysk skip isfisk héðan þang-
að’ þótt það reyndist um tíma allhættulegt vegna kafbáta, svo
Sem siðar er minnst á. Tvær flugvclar héldu uppi flugi innan-
^‘mds, en báðar urðu fyrir óhöppum, án þess að manntjón
hlytist þó af, og varð önnur algerlega ónýt. Er önnur stærri
keypt í hennar stað, sem þó ekki er komin til landsins. Þar
Sem lendingarskilyrði fvrir landvélar eru nú stóruin að batna,
eykst að sama skapi öryggi flugtækjanna.
Stjórn og löggjöf. Sú breyting varð á æðstu stjórn landsins,
að aljjingi samþvkkti lög' um ríkisstjóra og kaus liann 17.
Jání. Varð sendiherra Sveinn Björnsson fyrir valinu, og tók
hann við embættinu þá þegar. — Stjórnarsamvinnan frá 1939
ht'lzt við allt árið. í því skyni að styrkja hana, samþykkti
alþingi 15. maí að fresta alþingiskosningum, sem annars áttu
að fara fram á sumrinu, um óákveðinn tíma. Urðu út úr
l'essu allmiklar erjur, jiar sem talið var, að þetta myndi
01saka riðlun innan flokkanna. — Aljiingi var kallað
Saman þrisvar á árinu. Fyrst með reglulegu þingi í miðjum
lebrúar. Síðan skyndiþing, er stóð tvo daga, 9. og 10. júlí.
Lagði það samþykki á, að Bandaríkin tækju að sér hervernd
hmdsins í stað Breta, sem og gerðist um líkt leyti. Þriðja
hmgið var aukaþing, er stóð frá 13. okt. til 21. nóv., aðallega
kaIlað saman vegna dýrtiðarmálanna, sem það þó skildi við
°Ieyst. TJt af þessum málum, sem ollu miklu stríði milli flokk-
‘mna og torvelduðu stjórnarsamvinnuna, baðst forsætisráð-
berra Hermann Jónasson lausnar fyrir alla stjórnina 22. okt.
'kisstjóri veitti þó ekki lausnina fyrr en 7. nóv. En með því
'lð ekki reyndist unnt að skipa nýja stjórn með þinglegum
stuðningi, var hin gainla endurskipuð 18. nóv. nieð sörriu
uionnum. — Nú voru farnar að nálgast kosningar til bæjar-