Uppeldi og menntun - 01.01.2000, Page 20
DANSMENNT Í GRUNNSKÓLA
í nefndaráliti um Markmið listkennslu í grunn- og framhaldsskólum (1997) er dans tal-
inn til listgreina. í kynningarriti menntamálaráðuneytisins um námskrá í grunn- og
framhaldsskólum (Enn betri skóli 1998) má eygja von um að nemendur hér á landi
muni þegar fram í sækir eiga þess kost að fá tíma í dansmennt á viðmiðunarstunda-
skrá.
Hin nýja námskrá býður upp á svið sem nefnt er lífsleikni. Sviðið er safn margra
ólíkra greina eða efnisþátta sem ýmist hafa verið kenndir á grunnskólastigi í stutt-
um námskeiðum, klofnað frá greinum sem þegar eru á námskrá, t.d. sá hluti sam-
félagsfræði sem einu sinni hét heilsufræði, eða eru hlutar stærri greina svo sem fé-
lagsfræði og sögu. Einnig eru þar greinar sem ekki hafa átt stað í námskrá en eru
tákn síns tíma og þarft að kynna börnum, m.a. má nefna nýsköpun, leikræna tján-
ingu og dans.
Nám í lífsleikni getur náð til fjölda þátta eða hluta námsgreina og eru í áður
nefndu kynningarriti gefin dæmi um fjórtán þætti sem geta komið til greina en þeir
geta orðið fleiri (Enn betri skóli 1998:9). Skólastjóra/skólastjórn hvers skóla er ætlað
að sjá um val á því sem kynna á eða kenna undir þessum lið. Fái hver efnisþáttur í
lífsleikni jafnan hlut fær dansinn í mesta lagi átta stundir samanlagt yfir sjö ára
tímabil í lífsleikni. Tímum má fjölga með því að fækka námskeiðum sem skólar fá í
lífsleikni en það er háð ákvörðun hvers skóla um sig. Hér blasa við nokkur veiga-
mikil vandamál.
Fyrst ber að nefna að í viðmiðunartöflu um kennslustundir námsgreina er enginn
tími ætlaður í greinina lífsleikni fyrstu þrjú árin. Alger óvissa ríkir um hvort dans
verði valinn af einstökum skólum. Verði hann valinn er spuming um hve marga tíma
hann fær á ári og hve mörg ár? Hvemig er hægt að tryggja að nemendum verði ekki
mismunað vegna ólíkra aðstæðna? Hvaðan á að fá tíma til að samþætta dans og aðrar
greinar sbr. markmið um listkennslu (1997) og aðalnámskrá (1999)? Er hægt að
spoma við þeim mun sem getur orðið á aðstöðu nemenda milli skóla? Hvemig má
tryggja að böm fái sambærilega undirstöðu í dansmennt þegar ekkert samræmi er
milli skóla, hvorki faglega né í tíma sem greinin fær? Það lítur því út fyrir að mikill
munur geti orðið á aðstöðu bama í þessari grein. Að lokum, hvemig má bæta upp
þann mun sem kemur fram í viðmiðunarstundaskrá, en þar eru öðrum listgreinum
sem fyrir voru á skrá ætlaðar fjórar shmdir á viku frá og með 1. bekk?
Þess er þó vænst að mjór geti verið mikils vísir og má líta á þá tilhögun er fram
kemur í ritunum Enn betri skóli (1998) og Aðalnámskrá grunnskóla, listgreinar (1999)
sem vísbendingar um að menntamálaráðuneytið hyggist í framtíðinni gera dansi
jafn hátt undir höfði og öðrum listgreinum. Rökrétt virðist að leggja áherslu á að
byrja fyrst á námi yngstu nemendanna og byggja markvisst upp skyldunám í dans-
mennt líkt og gert er í tónmennt og myndmennt. Þá þarf að skipuleggja vettvangs-
kynningu á helstu sviðum dansins og gæti það t.d. verið innan námsgreinarinnar
lífsleikni eftir að hún hefst í fjórða bekk.
Dansmennt er hugsuð fyrir alla nemendur til að efla þekkingu og áhuga á öll-
um meginsviðum dansins, listum almennt og til að opna nemendum sýn á eigin
arfleifð og annarra í samræmi við markmið á þessu sviði (1997, bls. 9). Ekki verður
betur séð en að dansmennt geti einnig orðið sameiginleg undirstaða allra valgreina
18