Hugur - 01.01.2002, Page 75

Hugur - 01.01.2002, Page 75
,Sálin í Hrafnkötlu Hugur framt hyggst ég nota túlkunina til að „illústrera“ gagnrýni mína á efa- hyggjuna og efla hana rökum. Ein frægasta bók Vladimir Nabokovs heitir Pale Fire og er undarleg blanda af skáldsögu og ljóði. Þungamiðja ritsins er ljóðabálkur sem á að vera eftir John nokkurn Shade og er ljóðið gefið út af nágranna hans að skáldinu látnu. Útgefenda er mikið í mun að sanna að eiginlega fjalli ljóðið um landið Zemblu, föðurland útgefenda, þótt fátt eða ekkert bendi til að svo sé (sjálfur les ég bók Nabokovs sem háð um oftúlkunardellu bókmenntafræðinga en kannski er það mín oftúlkun!). Saga Zemblu er svo fólgin í neðanmálsgreinum útgefenda sem eiga að vera túlkanir á kvæðinu. Eins og nær má geta hafa bókmenntafræðingar haft ærin starfa við að túlka bók Nabokovs. Túlkendur benda á að stöðugt er gefið í skyn að sag- an sé hugarburður, skáldið heitir jú Shade, skuggi, og yrkir með svofelld- um hætti: I was the shadow of a waxwing slain By the false azure of the windowpane;40 Auk þessa vekur nafnið Zembla hugtengsl við orðið „resemblance", segja túlkendur. Þeir gera sér líka mat úr þeirri staðreynd að Zembla á að vera nágrannaríki Sovétríkjanna og lendir undir járnhæl þeirra eftir valda- rán kommúnista. í ofan á lag ku zemlja þýða „land“ eða ,jörð“ á rúss- nesku en sú staðreynd gæti styrkt þá tilgátu að Zembla sé slavneskt land og granni Sovétríkjanna.41 En bandaríski rithöfundurinn Mary McCarthy segir að Zembla hafi líka eiginleika sem tengjast norðurslóð- um.42 í fyrsta lagi minnir nafnið Zembla á nafn eyjarinnar Novaja Zeml- ja í Norður-íshafinu, í öðru lagi jrrkir Alexander Pope um eyjuna Zembla „in the fabulous north“.43 Hér lætur McCarthy staðar numið og vinnur ekki frekar úr „norðurtilgátunni um Zemblu“. En tilgátan er kannski máttugri en bandaríska skáldkonan skildi. I fyrsta lagi segir í Pale Fire að „Konungsskugg-sio“ (Konungsskuggsjá) sé talin ein af helstu perlum 40 Nabokov: Pale Fire (London: Corgi Books, 1962) bls. 35. Tengja mætti „false azure“ við „false assurance". Bókin er full af slíkum „assjúrönsum“! 41 Ég þakka Jóni ritstjóra Ólafssyni fyrir að benda mér á merkingu „zemlja“. 42 Nefna má að Rorty hefur líka fjallað um þessa bók en beint sjónum sínum að öðr- um hliðum hennar en McCarthy. Hann veltir aðalsöguhetjunum fyrir sér og spyr hvort bókin getur hjálpað okkur að varast grimmd. Rorty er við sama heygarðs- homið, notkun og túlkun eru samofin. Hvað sem því líður þá leikur hann annan túlkunarleik en McCarthy. Rorty (1989), bls. 141-168. 43 McCarthy: „A Bolt from the Blue“, The Writing on the Wall (Harmondsworth: Penguin, 1969) bls. 24—25. 73
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.