Hugur - 01.01.2002, Page 81

Hugur - 01.01.2002, Page 81
Siðfræði í skólum Hugur að verða skammt milli þess að fræða nemendur og að innræta þeim til- tekið gildismat. Núgildandi lög um grunn- og framhaldsskóla kveða á um að þeir skuli ekki bara veita „hlutlausa“ fræðslu. Þeir hafi líka markmið sem tengjast siðferði nemenda með beinni hætti. í lögum um grunnskóla (nr. 66 frá 1995) segir: 2. gr. Hlutverk grunnskólans, í samvinnu við heimilin, er að búa nemendur undir líf og starf í lýðræðisþjóðfélagi sem er í sífelldri þróun. Starfshættir skólans skulu því mótast af umburðarlyndi, kristilegu siðgæði og lýðræðislegu samstarfi. Skólinn skal temja nemendum víðsýni og efla skilning þeirra á kjörum fólks og um- hverfi, á íslensku þjóðfélagi, sögu þess og sérkennum og á skyld- um einstaklingsins við samfélagið. Og í lögum um framhaldsskóla (nr. 80 frá 1996) stendur: 2. gr. Hlutverk framhaldsskóla er að stuðla að alhliða þroska allra nemenda svo að þeir verði sem best búnir undir að taka virkan þátt í lýðræðisþjóðfélagi. Framhaldsskólinn býr nemendur undir störf í atvinnulífinu og frekara nám. Framhaldsskólinn skal leitast við að efla ábyrgðarkennd, víðsýni, frumkvæði, sjálfstraust og umburðarlyndi nemenda, þjálfa þá í öguðum og sjálfstæðum vinnubrögðum og gagnrýninni hugsun, kenna þeim að njóta menningarlegra verðmæta og hvetja til stöðugrar þekkingarleitar. Hér er beinlínis kveðið á um að skólarnir skuli temja nemendum siðferði- lega kosti eins og ábyrgðarkennd, víðsýni og umburðarljmdi. Þessir kost- ir eru að vísu nátengdir hæfni til að tileinka sér námsefni í ótal greinum. Menn skilja ekki kenningar og fræðilegar bollaleggingar nema þeir séu reiðubúnir til að opna hug sinn fyrir þeim og leggja þær á sömu vogar- skálar og skoðanir sem þeim eru löngu tamar án þess að halla réttu máli. Umburðarlyndi og víðsýni eru því að einhverju leyti forsendur þess að nemendur geti skilið kenningar sem veita aðra sýn á veruleikann en þeim er töm. Af lögum (og námskrám menntamálaráðuneytisins) má enn- fremur skilja að skólunum sé ætlað víðtækara hlutverk við siðferðilegt uppeldi en að innræta nemendum það lágmark sem þarf til að innihald 79
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.