Hugur - 01.01.2002, Side 91

Hugur - 01.01.2002, Side 91
Hugur, 12.-13. ár, 2000-2001 s. 89-96 Jón Ólafsson Lífsgildi og orðræða siðfræðinnar Það er auðséð á nýjasta greinasafni Siðfræðistofnunar, Hvers er siðfræð- in megnug? að heimspekileg siðfræði á íslandi er komin til nokkurs þroska. Það er mjög ánægjulegt að lesa þetta rit vegna þess að þar gefur hver greinin af annarri tilefni til rökræðna, höfundarnir virðast flestir vel skólaðir og heima í því sem efst er á baugi í siðfræði samtímans og þeir beita bæði lærdómi og umtalsverðri skarpskyggni á íslenskan veru- leika. Efnið sem mestur ágreiningur er um í bókinni varðar eina af grund- vallarspurningum nútímasiðfræði. Þetta er í grófum dráttum spurning- in um hlutverk og stöðu verðmæta eða gilda annars vegar og reglna hins vegar í siðfræðilegri rökræðu og umræðu. Þessi ágreiningur gengur eins og rauður þráður í gengum allt ritið og snertir bæði umræðu um sið- fræðikennslu sem er mörgum höfundanna ofarlega í huga og hina al- mennari umræðu um einstök efni siðfræðinnar. En hver er þessi ágreiningur í hnotskurn? Við getum sagt að nútímasiðfræði heþist með siðfræði Kants. Einn nýstárlegasti þátturinn í siðfræðikenningu hans eru skilin sem hann dregur á milli skynsemi og tilfinninga og sú skoðun að spurningum um siðferði, um siðlega breytni, skuli svara á grundvelli skynseminnar einn- ar. Þó að fáir aðhyllist hreinan og ómengaðan kantisma í siðfræði sam- tímans, þá hefur skynsemishyggja Kants sett mark sitt á alla siðfræði síðan á dögum hans. Einn angi hennar snýst um það að hve miklu leyti við getum gert grein fyrir siðareglum án þess að leggja tiltekna verð- mætadóma til grundvallar. Þetta efni birtist ekki síst í þeim ágreiningi sem mest ber á í greinum þeirra Róberts Haraldssonar, Jóns Kalmans- sonar og Vilhjálms Árnasonar. En ekki aðeins í greinum þeirra. Aðrir höfundar takast með einum eða öðrum hætti á við spurninguna um verð- 89
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.