Hugur - 01.01.2002, Side 119

Hugur - 01.01.2002, Side 119
Hugur, 12.-13. ár, 2000-2001 s. 117-123 Ritfregnir 1999-2001 1. Hannes Hólmsteinn Gissurarson: Stjórnmálaheimspeki. Reykjavík: Hið íslenska bókmenntafélag, 1999. 288 bls. Ritinu er ætlað að gefa heildstætt yfírlit yfir stjórnmálaheimspeki. Það skiptist í fimm kafla og fjallar hver um eitt af lykilhugtökum stjórn- málanna: Fyrst frelsi, þá lög, næst ríkisvald, svo réttlæti og loks lýðræði. I formála veltir höfundurinn vöngum yfir hlutverki stjórnmála og stjórn- málaheimspeki í samtímanum og kemst að þeirri niðurstöðu að stjórn- málin séu nauðsynlegur þáttur nútímasamfélags. Hann bendir á að sumar tegundir róttækni geri í raun ráð fyrir útrýmingu stjórnmálanna. Staðreynd vanþekkingarinnar gerir hinsvegar að verkum að við hljótum stöðugt að huga að og gagnrýna undirstöður þess sem við þó teljum okk- ur vita: „Meginstaðreyndin um mannlegt samlíf er einmitt hin víðtæka og óumflýjanlega vanþekking okkar um flest það, sem okkur skiptir máli í óraflóknu og margþættu skipulagi nútímans." 2. Henry Alexander Henrysson: Frumspeki og óendanleiki í verkum Skúla Thorlaciusar. Islensk heimspeki á 18. öld. Reykjavík: Hið ís- lenska bókmenntafélag, 1999. 183 bls. Bókin er að stofni til M.A. ritgerð höfundar í heimspeki við Háskóla ís- lands og fjallar um tvær heimspekilegar ritgerðir sem Skúli Thorlacius (1741-1815) samdi á námsárum sínum við Kaupmannahafnarháskóla. Efni þeirra er alheimurinn og óendanleikinn. Gerð er grein fyrir heim- spekilegum og sögulegum forsendum ritgerðanna og íslensk heimspeki á 18. öld sett í samhengi við þá frumspekihefð sem var ríkjandi í háskólum mótmælenda á 17. og 18. öld og er að ýmsu leyti frábrugðin þeirri heim- speki sem var stunduð annars staðar á meginlandi Evrópu og á Bret- landseyjum á sama tíma. Fjallað eru um heimspekinám íslenskra hafn- arstúdenta sem stóð með nokkrum blóma um miðbik 18. aldar og rakinn forvitnilegur þráður í íslenskri hugmyndasögu sem lítt hefur verið rann- 117
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.