Búnaðarrit - 01.01.1913, Page 16
12
BÚNAÐARRIT
Tróðholið. Að sjálfsögðu verður að vera full trygg-
ing fyrir þvi, að vatn gangi ekki í
tróðhollð að neðan, ofan af þaki eða inn með veggja-
götum (gluggum, dyrum). Þykt þess eða vídd hlýtur að
fara eftir því, hve gott tróð er notað og hve hlýtt húsið
skal vera. Eg hugsa mér að sjaldan muni hyggilegt
legt að hafa hana minni en 6", en við lakara tróð (mold)
alt að 14". Alls yrði þá veggþyktin 16" til 1 al.
Þessi þykt á veggjunum þarf alls ekki að koma í bága
við útlit hússins eða birtu innan í því, en auðvitað
stækkar hún húsið að nokkrum mun og gerir það dýrara.
Tróðholið verður opið að ofan og gengur óslitið
niður að kjallara, þar sem gluggar eða dyr eru ekki til
fyrirstöðu. Tróðinu má því hella ofan í holið ofan frá
og bæta þar á það, er það sígur. Til þess þyrfti að
vera laus fjöl (skrúfuð fö3t) meðfram súðinni. Á svip-
aðan hátt þyrfti að búa um gluggaborðið innan glugga-
karms neðan til, svo þar mætti bæta á tróðið og at-
huga rifuna milli karms og múrs; þétta hana ef þess
þyrfti við.
Tróöið. Ef vel á að vera, þarf tróð að vera
bæði hlýtt og mjög endingargott. Efni,
sem fúna fljótlega, mygla eða geta legið undir öðrum
stórskemdum, eru ill-notandi, því ekki er að því hlaup-
ið, að ná tróðinu burtu, þegar það er eitt sinn í vegg-
inn komið. Yér eigum ekki völ á mörgum efnum, sem
hentug séu til þessa.
Vikur myndi vera ágætt tróð, þar sem völ væri á
honum. Hann er án efa all-hlýtt tróð og allsendis óbreyt-
anlegur. En þrátt fyrir öll vor eldgos er hann óvíða til,
það nokkru nemur.
Aska virðist mér liggja næst hendi. Ef henni væri
safnað i þessu augnamiði, án þess að nokkuð færi saman
við hana, er hún hlýtt og hreinlegt tróð, hvort lieldur
sem askan er af sauðataði, mó, kolum eða viði. Engin