Búnaðarrit - 01.01.1913, Page 28
24
BÚNAÐARRIT
ulda. Þær fást keyptar hér fyrir þolanlegt verð og eru
gerðar til þess. Ræmur þessar eru og mesta þing á
stigatröppur og verja stigana sliti. Þeir sem eitt sinn
hafa reynt þær viija alls ekki án þeirra vera.
Lofthæð Það munu margir ætla, að í risuleg-
herbergja. um húsum sé sjálfsagt að hafa her-
bergin allhá undir loft. Satt er það, að
ríkmannlegri eru slík herbergi og loftbetri að öllum jafn-
aði, en jafnframt eru þau 'kaldari til muna og erflðari
að hita upp, sérstaklega við gólflð. í venjulegum
smærri húsum er engin ástæða til að hafa herbergin
hærri en 4 álnir, og má jafnvel komast af með nokkru
minna. Herbergin eru fult svo viðkunnanleg, ef loft-
hæðin er ekki mjög mikil, ódýrari og hiýrri. Það þarf
ætíð að sjá fyrir aðfærslu á fersku lofti hvort sem er,
og með henni má halda loftinu fullgóðu, þó hæð her-
bergja sé ekki ýkjamikil.
Nauðsynleg Eg hef nú talið nokkur atriði, sem lúta
áminnining. að því, að gera hús vor hlý.'Jjj Áður en
eg iýk máli mínu, vildi eg minna á tvo
hluti nauðsynlega, þó ekki taki þeir frekar til hlýindanna
en alls smíðisins yflrleitt.
Enginn skyldi afráða byggingu og fyrirkomulag íbúð-
arhúss fyr en byggingafróöur maður hefur athugað wjrp-
drœtti og fyrirhomidag alt. Ókeypis fæst þetta að visu
ekki, en peningunum, sem til þess ganga, er nálega ætið
vel varið, ef menn hafa vit á að hagnýta sér þær leið-
beiningar, sem gefnar eru. Sem stendur eigurn vér að-
eins einn húsagerðarfræðing, Rögnvald Ólafsson, og hann
hefur fengið allmikla reynslu við byggingar víðsvegar um
land. Til hans munu menn geta snúið sér, og ef hann
getur ekki sjálfur sint málaleituninni, getur hann fengið
aðra dugandi menu til þess að athuga málið.
Þá er annað atriði, sem miklu skiftir. Steinsteypa