Búnaðarrit - 01.01.1913, Síða 57
BÚNAÐARRIT
53
sands- og valllendis-beitarlandi er aðgreind eftir föngum.
Auðvitað virðist mér sjálfsagt, að hlutaðeigendur kjósi
sér þrjá valinkunna menn, sem vísa má öllum slíkum
ágreiningi til til fullnaðarúrskurðar.
Hugsanlegt er, að ráðið verði fram úr ullarverkun-
armálinu á annan hátt en þann, sem fyrir mér vakir.
Það gæti orðið á þann hátt, að kaupmenn komi upp
ullarþvottastöðvum í kaupstöðunum eða í grend við þá,
og bændur leggi inn ull sína hjá þeim. En þá fara
bændur, á mis við nokkuð af þeim hag, sem verður af
því, að ullarverkunin batnar. Miklu tel eg hitt æski-
legra, að bændur taki sjálíir að sér að koma ullarverk-
uninni í gott horf, livort sem það verður gert með
mörgum þvottastöðvum og smáum eða fáum og stórum,
og hafi sjálfir allan 'haginn og sæmdina af því.
Eftirfarandi áætlun um kostnað við ullarþvottahús-
byggingu hefir gert húsasmiður Sveinn Jónsson, með-
stjórnandi í h/f Yölundi, eftir tilmælum mínum, svo að
hlutaðeigendur geti betur glöggvað sig á grein minni
hér að framan um þetta efni.
Ytirlit yfir kostnaö við að hygg.ja ullaijjvottaliús.
Undirstaðan skal vera steypt eða hlaðin */2 alin
frá jarðfleti, og á að grafa fyrir undirstöðunni 1 alin
niður, og skulu 2/s af greftinum vera fyltir upp með
muldu grjóti (púkki), sem barið er niður með sleggju,
og ofan á það skal steypa eða hiaða.
Gólfið á að steypa, og skal liafa */2 álnar þykkt
grjótlag undir sementssteypunni og berja það vel niður,
áður en farið er að steypa. í þetta grjótlag skal leggja
frárenslispípu, sem tekur á móti öllu skolpvatni, sem
notað hefir verið í húsinu. Þar næst skal steypa ofan
á grjótlagið og pípuna 4" þykku sementslagi og skæna
(pússa) svo að síðustu yfir alt góiflð, en gæta þess, að
gólfinu halli að frárenslispípunni. Til þess að koma í