Búnaðarrit - 01.01.1913, Page 72
68
BÚNAÐARRIT
Að þessu ferðalagi loknu fór eg að Iivanneyri og
var við búnaðarnámsskeiðið, sem haldið var þar við
bændaskólann 29. jan. til 3. febrúar. Flutti eg þar 6
fyrirlestra, um framræslu, áburð, feiti í mjólk, grasbýla-
búskap o. fl. Þar hélt og fyrirlestra af hálfu Búnaðar-
félagsins Ingimundur heitinn Guðmundsson. Kom eg
heim úr þessari ferð 5. febrúar, og hafði eg þá verið
að heiman 34 daga alls.
Næstu ferðina fór eg austur yfir fjall. Lagði eg á
stað 8. april og var 12 daga burtu. Var á sýslufundi
Árnesinga í 2 daga. Þaðan fór eg svo austur í Rang-
árvallasýslu, og var á árs-sýningu Hrossarœlctunarfélags
Austur-Landeyinga, 14. apríl. Þar voru sýndar 40
hiyssur og 126 tryppi. Öll voru hrossin í góðu standi
og vel meðfarin.
Á heimleið var eg á fundi í Gaulverjabæ, 17. apríl,
til umræðu og undirbúnings Miklavatnsmýraráveitunni.
Þá fór eg 25. apríl vestur í Borgarfjörð, til þess að
vera við burtfararprófið á mjólkurskólanum á Hvítár-
völlum o. fl. Fór eg fyrst vestur að Álftá og um
Borgarhrepp og ieiðbeindi með áveitu á nokkrum bæjum.
Prófið á mjólkurskólanum stóð yfir 5.—7. maí, og út-
skrifuðust 9 námsmeyjar. — í þessari ferð fór eg einnig
upp í Skorradal, að Efstabæ, til þess að líta þar á
skemdir af völdum Fitjár og leggja ráð til varnar þeim,
ef auðið væri. Brýtur áin þar af túninu og heldur þvi
vafalaust áfram, ef ekkert er aðhafst. Kom mér helzt
til hugar, að reynandi væri að gera þar straumbrjóta
út frá túnbakkanum og með því hrinda ánni frá túninu.
En all-kostnaðarsamt er það verk með öðru fleiru, er gera
þarf til varnar skemdum af ánni. Var 15 daga í ferðinni.
Þann 16. maí fór eg austur í Flóa, til þess að
undirbúa og koma á stað Miklavatnsmýrar-áveituverkinu.
Hófst vinnan við skurðagröftinn 20. s. m. í suður-
leíð úr þeirri ferð leiðbeindi eg með skurði og stíflur til
áveitu á 4 bæjum í Ölfusinu. Var 10 daga 1 burtu. —