Búnaðarrit - 01.01.1913, Page 73
BÚNAÐARRIT
69
Þá lagði eg aftur á stað 30. maí, og austur, aðallega
til umsjónar eða eftirlits með skurðagerðinni á Mikla-
vatnsmýri. Kom aftur úr þessari ferð 12. júlí.
Jafnhliða eftirlitinu með skurðagreftinum á Mikla-
vatnsmýri þurfti eg á þessu tímabili að ferðast i ýmsar
áttir í búnaðarerindum. Þannig var eg á búnaðarfélags-
fundi að Mmni Borg í Grímsnesi, 9. júní, og hélt þar
fyrirlestur um nautgripaíólög og stofnun þeirra. Þaðan
fór eg svo vestur í Borgarfjörð, og var á hrossasýningu
í Deildartungu 14. s. m. í þeirri ferð leiðbeindi eg með
áveitu á Þingvöllum og íleiri bæjum i Þingvallasveitinni.
Þá fór eg og austur í Holt í búnaðarerindum, og
síðan austur undir Eyjafjöll, að Þorvaldseyri. Tók þar
út fyrirhieðslugarð fyrir Simðbœlisá, er þá var nýgerður
og Búnaðarfélagið hafði heitið styrk til. Er sá fyrir-
hleðslugarður 230 metrar á iengd og 1—lVs metri á
hæð, og þyktin að sama skapi. Garðurirm er mikið
mannvirki og heflr kostað um 2000 kr. — Ennfremur
var eg á fundi Búnaðarsambands Suðurlands, 17. júní,
og á héraðssýningu fyrir hross í Þjórsártúni, 28. s. m.
Þessu næst fór eg austur yfir fjall, 2. ágúst, til
þess að líta eftir skurðagreftrinum á Mikiavatnsmýri, og
var að eins 4 daga í burtu. — En svo iagði eg á stað
á ný 1. september. Fór fyrst um Mosfellssveit og síðan
austur í sýslur, og kom ekki aftur úr þeirri ferð fyr en
22. okt. Erindið meðfram að líta eftir áveituverkinu,
en auk þess ferðaðist eg töluvert annað, þar á meðal
nokkuð um efri hluta Árnessýslu til mælinga, og austur
í Landeyjar og Mýrdal, alla leið að Yík. Mældi eg þar
fyrir sýnistöð eða tilraunareit, og ieit eftir samgirð-
ingum, sem verið var að koma upp þar i Mýrdalnum.
— Svo var eg á fundi í Gaulverjabæ 16. okt. Og loks
fór eg út í Selvog, til þess að athuga samgirðingu, sem
þar er verið að hugsa um að koma á fót.
Samkvæmt framansögðu hefl eg verið á ferð i
samtals 171 dag.