Búnaðarrit - 01.01.1913, Page 74
70
BÚNAÐARRIT
Miklavatnsraýrar-áveitan. Fullnaðarmælingar til
undirbúnings henni voru gerðar sumarið 1911. Á al-
þingi veturinn áður var heimilað að veita alt að
20000 kr. láni úr viðlagasjóði til áveituverksins. Þegar
búið var að reikna út stærð skurðanna o. s. frv., var
skurðagröfturinn boðinn út. Lægst tilboð gerðu 4 bænd-
ur í Gaulverjarbæjar og Viilingaholts hreppum, og tveir
af þeim búendur á áveitusvæðinu. Tilboð þeirra var
33 aurar á hvern rúmmetra í skurðunum. Tóku þeir
svo að sér að vinna verkið fyrir þetta verð, sam-
kvæmt samningi, er Búnaðarfélagið gerði við þá um það.
Síðan var mér falið að hafa umsjón og eftirlit með
verkinu.
Byrjað var að vinna að skurðagreftrinum 20. maí
í vor, eins og áður er getið. Frá þeim t.ima og fram
um Jónsmessu unnu að jafnaði 50—70 manns í
skurðunum. Eftir það voru þeir ekki nema 10, er
stöðugt héldu verkinu áfram. Skurðagreftinum var
svo lokið að fullu 27. september.
Á flóðgáttinni og að grafa efstu 100 metrana við
ána, sem ekki voru í útboðinu, var byrjað 2. október.
Var svo unnið að því verki viðstöðulaust, unz því var lokið.
Eftir það var búið um stíflur í áveituskurðina, og var
verið við það fram að veturnóttum, er veður leyfði. —
Nú má heita að þessu áveituverki sé lokið, og það
undirbúið til áveitu í vor er kemur.
Áveitunni er ætlað að ná yfir svæði — Mildavatns-
mýri og nærliggjandi engjalönd — er nernur 2018 teig-
um (hektar). Hafa hennar þá not rúmir 30 búendur,
þar af 6 búendur í Villinga.holtshreppi, en hinir allir í
Gaulverjabæjarhreppi. — Áveituskurðirnir og þurkskurð-
irnir, er gerðir voru í sumar, nema samtals um 18000
metrum á lengd eða 33500 rúmmetrum.
Kostnaðurinn við verkið, sem mér er kunnugt um
og kominn er í ijós, er þessi: