Búnaðarrit - 01.01.1913, Blaðsíða 75
BÚNAÐARRIT
71
1. Skurðagröftur kr. 12208,92
2. Flóðgáttin — 3318,40
3. Stíflur í áveituskurðína — 500,00
4. Mælingar og undirbúningur verksins — 820,00
5. Umsjón verkfræðings við flóðgáttina — 454,50
6. Annar kostnaður — 122,18
Samtals kr. 16425,00
Af þessari upphæð eru enn ógreiddar rúmar 200
kr., er greiðast eftir áramótin.
Enn svo má enn gera ráð fyrir ýmsum kostnaði,
sem bætist við þessa upphæð. Þar á meðal er flutn-
ingur eða akstur á grjóti að flóðgáttinni, sem samið
hefir verið um, o. fl.
Mælingar hefi eg gert all-víða, en fáar í stórum
stíl. Helzt er að nefna mælingu fyrir áveitu úr svo-
neíndum Fljótsvegi á engjar Eyjahverfisjarðanna í Vestur-
Landeyjum. Er það erfitt verk og all-kostnaðarsamt,
að koma henni á; en mundi vafalaust borga sig. Eink-
um gæti hún orðið tii þess, að draga úr sandágangin-
um, sem gerir þarna stórtjón og eykst með ári hverju.
Þá athugaði eg, eftir beiðni Quðmundar bónda
Lýðssonar í Fjalli á Skeiðum, hvort tiltækilegt væri að
ná vatni til áveitu á Skeiðin úr vatninu, sem er upp á
Vörðufélli. Mér virtist það vera tiltölulega auðvelt.
Þarf eigi annað til þess, en að grafa niður — sprengja—
klöpp, sem lækurinn úr vatninu rennur á, og búa þar
svo um stíílu, til þess að vatnið safnist fyrir að vetrin-
um. Kostnaðurinn við það mundi verða alt að 400 kr.
Hins vegar tel eg, að þetta vatn, sem næðist með
þessu móti, mundi ekki nægja nema fáum jörðum, í
mesta lagi 2—3, er liggja næst fjallinu. Og mér leizt
þannig á vatnið, að það mundi frjóefnasnautt.
Ennfremur gerði eg mælingar á Syðri Brú og Neðra
Apavatni í Grímsnesi, Hrepphólum í Hrunamannahreppi,
Hæli og Geldingaholti í Gnúpverjahreppi, Blikastöðum og
Lágafelli í Mosfellssveit, Einarsnesi og Hamri í Borgar-