Búnaðarrit - 01.01.1913, Page 79
BÚNAÐARRIT
75
á nautgripum. Hitt annað kendi eg, rúmar 20 stundir
á viku.
Sauðfjárkynbótabúin eru 9 alls. Þau voru orðin
10, en eitt þeirra hefur lagst niður, búið á Hreiðars-
stöðum í Norður-Múlasýslu. Ilin, sem eru starfandi eða
starfað hafa fram að þessu, eru á Breiðabólsstað í Borg-
arfjarðarsýslu, Grímsstöðum í Mýrasýslu, Tindi í Stranda-
sýslu, Auðunarstöðum í Yestur-Húnavatnssýslu, Sveins-
stöðum og Haga (sama búið) i Austur-Húnavatnssýslu,
Eyhildarholti í Skagafjarðarsýslu, Leifsstöðum í Eyja-
fjarðarsýslu, Einarstöðum (Fjárræktarfólag Suður-Þing.)
í Suður-Þingeyjarsýslu og Ytra Lóni í Norður-Þingeyjar-
sýslu. — Sauðfjárkynbótabúið í Eyhildarholti var áður á
Nautabúi. Eigandi þess flutti sig í vor búferlum af þeirri
jörð á hina fyrtöldu.
Hrossakynbótafélögin eru 3 alls; eitt í Austur-
Handeyjum, annað á Fijótsdalshéraði, og það þriðja í
Hrunamannahreppi í Árnessýslu. Það var stofnað áþessu
ári. — Frá hrossakynbótabúinu í Yallholti í Skagafirði
hefir ekki komið nein skýrsla þetta ár.
Nauðsynlegt væri, að kynbótafélögunum fjölgaði
meira hér eftir en verið hefir að undanförnu, bæði
nautgripafélögum og hrossakynbótafélögum. Það eru fé-
fagsstofnanir, sem gera áreiðanlega gagn, ef rétt er á
baldið.
Smjörbúin. Á þeim hefir orðið sú breyting, að
Vatnsdalsbúið lagðist niður 1911. En svo munu nokkrir
menn þar hafa keypt áliöldin frá gamla búinu, og reka
nú smjörgerð í félagsskap. Einnig lagðist Þverárbúið í
Eyjafirði niður. En svo var kornið á fót nýju smjörbúi
í Svarfaöardalnum, er hóf starfsemi sína í vor. Þá er
■og Laxárbúið í Ilúnavatnssýslu niður lagt.
Búin hér sunnanlands störfuðu flest með lang-
lengsta móti þetta ár, og smjörið varð einnig mun
meira hjá sumum þeirra en áður hefir verið. Og þó
var málnyta allan síðari hluta sumarsins óvenjulega lítil