Búnaðarrit - 01.01.1913, Síða 104
100
BÚNAÐARRIT
En einhver ráð verður að taka til að koma lögun á
í þessu efni. Búfjárræktarnefnd Búnaðarþingsins 1909
minnist á aðra leið, sem fara mætti i þessu máli, og
skal eg leyfa mér að taka hér upp orð hennar þar að
lútandi:
„Samkvæmt óskum þeim, er komu fram á 3. fundi
Búnaðarþingsins um að búfjárræktarnefndin hugleiddi,
hvernig komið yrði lögum yfir fjármörk manna þannig,
að komist yrði hjá þeim rniklu óþægindum, er tíðar
sammerkingar valda, höfum vér tekið fjármarkamálið til
athugunar og íhugað það eftir föngum.
Ósk þá, er fram var borin á áminstum fundi um
að lögun yrði komið á þetta mál með því, að heimild
þyrfti til þess, að taka upp nýtt fjármark, og að aðeins
eitt vald í landinu gæti veitt þessa heimild, ásamt vís-
bendingu um, að það væri eðlilegast að stjórnarráðið færi
með þetta vald, höfum vér yfirvegað og hyggjum að hana
mætti framkvæma með þeim hætti, er nú skal greina:
Stjórnarráðið annast samning og útgáfu markaskráa
fyrir landið.
Til þess að taka upp nýtt fjármark þarf samþykki
stjórnarráðsins. Nú er neitað um umbeðið mark, og skal
þá umsækjanda jafnframt bent á mark, er hann eigi
kost á að fá, ef hann innan ákveðins tíma sendir beiðni
um það. Nú er manni leyft að taka upp nýtt mark, og
skal það þá bírt í Lögbirtingablaðinu.
Viðauka við markaskrár landsins skal gefa út, þegar
þurfa þykir, svo og endurskoðaða útgáfu af þeim.
Þegar markaskrár fyrir land alt hafa öðlast gildi,
skal þeim mönnum, er eiga sammerkt við aðra, gert að
skyldu að taka upp nýtt fjármark, er þeir flytja sig
búferlum.
Þessi leið eða önnur í líka átt er þó að nefndar-
innar áliti ekki sem ákjósanlegust; óttast fyrir að þessi
aðferð kunni að valda talsverðum óþægindum, með því