Búnaðarrit - 01.01.1913, Page 154
150
BÚNAÐARRIT
sókn, að í smjörinu sé meira en 16°/o af vatni, er
sendingin gerð upptæk, og hlutaðeigandi smjörbú dæmt
sekt. Komi slíkt fyrir aftur, hækkar sektin upp í
400—1000 kr.
Nú á tímum er því við öll dönsk smjörbú notað
áhald — vog — sem fundin er upp fyrir fáum áruin og
sýnir hversu mikið vatn er í smjöri. Áhald þetta er
nauðsynlegt bæði til þess, að hægt sé að gæta þess, að
vatnsmagn smjörsins fari ekki yfir 16°/o, og í öðru lagi
til þess, að hægt sé að halda vatnsmagni smjörsins sem
næst 16°/o.
l°/° minna eða meira vatn getur orsakað ekki svo
lítið tap eða ágóða fyrir hvert smjörbú eftir stærð þess.
Tökum t. d. bú, sem býr til 8000 kg. smjörs á ári (sem
lætur nærri að sé meðalbú hér á landi), og í smjöri
þess heflr verið að meðaltali ll°/o af vatni, en eftir
rannsókn á smjörinu hefir það verið aukið upp í 14°/o,
þá gerir það smjörauka um árið 240 kg. Sé nú verð
smjörsins 1 kr. 90 au. hvert kg., þá verður það 456 kr.
á ári, sem búið fær fyrir vatnsaukann í smjörinu. —
Auk þess sem þegar er sagt þykir smjörið fínna
— mýkra — eftir því sem það heflr meira vatn innan áður-
nefndra takmarka(16%),þ.e.a.s., ef sýringin er í góðu lagi.
Ekki er þó svo að skilja, að eg með þessu viiji
gefa í skyn, að smjör frá búunurn okkar hafi í sér
meira en 16% vatn, þvert á móti álít eg, að í smjörinu
okkar sé frekar of lítið en of mikið vatn, að minsta
kosti þegar sauðasmjör er saman við.
Hans Orönféldt.