Búnaðarrit - 01.01.1913, Page 161
BÚNAÐARRIT
157
fara fram um leið og tekið er við henni á þvottastöð-
inni. Er slíkt hið mesta vandaverk, og vandfengnir
menn til þess. Og ber þá enn að sama brunni, að
hægra verður að fá nóga vel færa, menn að fáum þvotta-
stöðvum og stórum en mörgum og smáum.
Jarðyrkjukensla í Einarsnesi.
í vor hafa þessir nemendur notið kenslu:
1. Frits Magnússon af Skagaströnd, Húnavatnssýslu,
2. Einar Guttormsson frá Ósi, Eyjafjarðarsýslu,
3. Jón Eiríksson frá Stað, Húnavatnssýslu,
4. Axel Thorsteinsson úr Reykjavík,
5. Gísli Kristjánsson frá Rauðkollsstöðum, Snæfellsn.s.,
■6. Þórarinn Guðmundsson frá Finnbogast., Strandas.,
7. Þorgeir Bjarnarson frá Ásgautsstöðum, Árnessýslu.
Nemendurnir voru 18—24 ára.
Um kenslu höfðu 12 sótt, og var 8 heitið henni,
En einn af þeim kom ekki og gerði enga grein fyrir
ástæðum til þess. Er slíkt mikið hirðuleysi og má ekki
■eiga sér stað.
Þetta vor heflr alt af verið unnið í Einarsnesi. —
Gerður var matjurtagarður, um dagsláttu að stærð.
Settar voru niður 300—400 trjáplöntur af ýmsu tagi,
og litur vel út með þær. Þaksléttaðar hafa verið 2
dagsláttur í þýfi. Lokið var við hér um bil 3 dagsláttur,
er áður höfðu verið plægðar, og var nú sáð í þær höfr-
um og grasfræi. í rúma dagsláttu var sáð rófum og
kartöflum, og fer það alt mjög vel á stað. Mýrarblettur
hefir verið ræstur fram, lokræstur (malarræsi). Kensl-