Búnaðarrit - 01.01.1913, Page 220
216
BÚNAÐARRIT
brautir í þýfðu reitina í því; einnig hey af næstu út-
siægjum, eldsneyti (mó og skán) o. m. fl. Þegar eg
þurfti að byggja hús eða garð, flutti eg efnið að á vagn-
inum, og það steina, sem 2—3 menn þurfti til að velta,
o. s. frv.
Þegar hingað kom, fór eg hinu sama fram. Byrjaði
á að gera túnið vagnfært, þar sem þýft var, með 1—2
faðma breiðum brautum 1 þúfnareitina. Svo fór eg að
laga veginn milli bæjar míns og næsta akveggr, sem
nú lá nær mér en áður, og jafnframt til mótaksins o. fl.
Skal eg nú lýsa þeim brautum. Breldcu nefni eg þar
sem er upp á móti, en halla undanhaid; ahveg upp-
hleyptan, „lagðan“ veg, en akbraut eða braut það sem
að eins er rutt eða á annan hátt lagað, eða sléttir mel-
ar og því um líkt notað, eins og það kemur fyrir eða
lítið lagað.
1. Aðdráttarbraut frá alcvegi og lieim.
a. 36 metrar; melgata, jafnlendi
b. 40 — brött sandmelbrekka, um 1 á 5—6 (= hallinn 1 fet á 5—6 fetum)
d. 28 — melgata, hæg brekka, 1 á 12—15
e. 116 — skörp brekka, 1 á 8—10
f- 168 — hæg brekka, 1 á 12—14
ff- 716 — sumt apalgrýtt, jafnlent
h. 80 — hæg brekka, 1 á 10—12
i. 634 — eins og g.
1818 gömul þjóðgata, víðast apalgrýtt mel- holt; gatan að mestu niðurgrafin, og laust hnöllungsgrjót víða í henni. Kastaði eg oft úr stærstu steinunum.
2. Framhald sömu brautar, þar sem enginn vegur var.
a. 386 metrar; melbunga, lausagrjóti rutt
b. 224 — mýrarsund, þýfið jafnað
d. 564 — melur smágrýttur