Búnaðarrit - 01.01.1913, Page 239
BÚNAÐARRIT
235
Vorið hlýtt og hagstætt um alt Suðurland. í Árnessýslu
var nægilegur sauðgróður kotninn í apríllok og kúahagar
um fardaga. í hinum þremur landsfjórðungunum var vor-
veðráttan að vísu hlíð og staðviðrasöm, en þurkar of miklir;
tafði það fjTÍr gróðri. í Skagaílrði var sumstaðar byrjað
að vinna á túnum um sumarmál. n. Austfjörðum fremur
köld veðrátta, en áfellalaus. Hið sama er skrifað úr Eyja-
firði. Ár uxu þar ekki fyr en eftir íardaga.
Sumarið. Hagstæð lieyskapartíð, að heita mátti. Á
stöku stað á Suðurlandi var byrjað að slá fyrir Jónsmessu,
en þá kom óþurkakaíli, sem hélzt fram til 10. júlí. Hrökt-
ust þá töður hjá þeim, sem snemma byrjuðu. Eftir það
var þurkatíð fram í septemberbyrjun. Nýting ágæt allan
þann líma. Spretta góð á túnum og vallendi, en rýr á
mýrlendi.
í Borgaríjarðar- og Mýrasýslu, Snæfellsness og Dala
hélzt sama þurkalíðin fram yfir höfuðdag. Grasvöxtur í
dágóðu lagi á túnum, en miður á engjum. Iley i mestalagi.
Á Vestfjörðum byrjaði slátlur víða fullum hálfum mán-
uði fyr en venjulega. Tíðin hagstæð fram yfir höfuðdag,
og heyskapur í bezta lagi. I Bæjarhreppi við Hrútafjörð
stóð sláttur yfir fullar 12 vikur.
Á Norðurlandi byrjaði sláttur um mánaðamótin júní
og júlí. Pá voru tún bæði brunnin og kalin á ýmsum stöð-
um í Skagafirði. Nýting varð góð og heyskapur víðast í
meðallagi.
Á Austfjörðum byrjaði og sláttur með júlíbyrjun, og
stóð heyskapartiminn yfir með lengsta móti. Grasspretta
allgóð og heyfengur með meira móti. Júlí f'remur hlýr og
þurkasamur, ágúst kaldur.
Með byrjun ágústmánaðar brá til kulda um land alt.
Féll þá snjór á hálendi, sumstaðar mikill. Á heiðarlönd-
um Borgarfjarðar fórst fé í fönn. Hið sama er skrifað af
Norðurlandi. í Fljótum og Stiflu varð ekki unnið að slætti
í meira en vilcu fyrir snjó, og kúm varð að gefa inni all-
marga daga. Pá var fé dregið úr fönn dautt og dauðvona.
— I Eyjafirði fraus svo mikið þrjá daga í ágúst, að glugga
liélaði. Á Munkaþverá var frostið þrjá morgna í röð 3°,
5° og 7° C. — í Þingeyjarsýslu varð alveg jarðlaust sum-
staðar til heiða. Á inslu bæjunum í Öxarfirði og á Hóls-