Búnaðarrit - 01.01.1913, Page 247
BÚNAÐARRIT.
243
Félaginu hafa borist fyrirspurnir um, hvernig reyna
megi gaddavír, út af því, að tvímæli hefir leikið á um
gæði nokkurs af vír þeim, sem fluzt hefir til landsins
síðustu árin. Hefir nú verið grenslast eftir, hvernig
reyna megi vírinn. Kemur bráðum ieiðbeining frá Ás-
geiri Torfasyni um það, og getur þá hver maður sjálfur
reynt meö mjög einfaldri aðferð, hve vel vírinn er gal-
vaniseraður. — Annars mun rannsóknarstofan gefa þeim,
sem vilja láta reyna vír eða þakjárn og fá vottorð um
gæði þess, kost á að fá það fyrir væga borgun.
Búfjárrækt. Til hennar voru þessar helztar fjár-
veitingar:
Nautgripafélög 18 liafa fengið alls 3088 kr.
styrk.
Sauðfjárkynbótabú 7 alls 1300 kr.
Hestakynbótafélög 2 samtals 400 krónur.
Til hrútasýninga var varið 450 kr. (Á Austur-
landi og í Eyjafjarðar og Þingeyjar sýslum).
Til g i r ð i n g a f y r i r k y n b ó t a g r i p i 589 kr.
(Styrkurinn þriðjungur kostnaðar).
Til eftirlitskenslunnar 551 kr.
Leiðbeiningaferðir Jóns H. Þorbergssonar. Hann
var í haust sem leið við hrútasýningar í Borgarflrði, en
ferðaðist svo í vetur um Gullbringu, Árness, Rangár-
valla og V.-Skaftafells sýslur, skoðaði fé hjá 350 bænd-
um og leiðbeindi í fjárvali, hélt fyrirlestra á 45 stöðum,
þar á meðal við námsskeiðin í Þjórsártúni og i Vík, fyrir
samtals 1332 áheyröndum. Næsta vetur mun hann enn
verða í þjónustu búnaðarfélagsins og verða þá fyrst við
hrútasýningar í haust, en fara síðan leiðbeiningaferð um
Vestfirði, eftir ósk búnaðarsambandsins þar, enda er það
sá eini partur af landinu, sem hann á ófarið um.
Námsskeiðin, sem félagið kostar, voru vel sótt árið
sem leið. Garðyrkjunemendur i gróðrarstöðinni voru
14. Höfðu sótt nálega 40. Við plægingakensluna í
Einarsnesi voru 7 nemendur. Eftirlitsnámsskeiðið sóttu
16*