Búnaðarrit - 01.01.1913, Page 249
BÚNAÐARRIT.
245
Auk þessa var veittur utanfararstyrkur af vöxtum Liebes-
gjafar: Birni Jónssyni til verklegs búnaðarnáms á Bret-
landi 150 kr., Guðmundi Jónssyni til verklegs búnaðar-
náms í Svíþjóð 150 kr. og Ingimundi Jónssyni 250 kr.
til að kynnast áv9itufyrirtækjum, í því skyni að hann
gæti tekið að sér umsjón með áveitunni á Miklavatnsmýri.
Búnaðarmálafundwr sd, sem ráðgerður var á bún-
aðarþingi 1911, var haldinn i sumar sem leið, vel sóttur
og heppnaðist vei. Búnaðarritið hefir ílutt mönnum 2
af fyrirlestrum þeim, sem þar voru haldnir. Kostnaður
félagsins við þann fund (ferðastyrkur o. íl.) varð tæpar
400 kr.
Jarðyrlcjxibölúna, sem búnaðarfélagið hefir ákveðið
að styrkja til að út komi, verður nú byrjað að prenta.
Er 1. heflið búið til prentunar og verður reynt að hafa
það tilbúið áður en kensla byrjar í bændaskólunum í
haust. Heflr síðast staðið á að fá myndamótin. Sig-
urður Kristjánsson bóksali gefur bókina út með styrk
frá félaginu.
Búnaðarsamböndin. Eins og kumiugt er, var í fyrra
stofnað Búnaðarsamband Kjalarnessþings. Sýslunefnd
Snæfellsnessýslu heflr í vetur samþykt að stofna bún-
aðarsamband í félagi við Dalasýslu. Ekki er enn frétt
um undirtektir sýslunefndarinnar í Dalasýslu undir það
mál, en búist er við þeim góðum. Verði það, má heita
að alt landið sé komið i búnaðarsambönd, en þó nokkuð
á annan veg en búnaðarþingið 1911 lagði til. Það ætl-
aðist til, að samböndin yrðu 4, en með þessu móti verða
þau 7. Það er sök sér. Hitt er meira vert, að engar
sveitir verði alveg utan við þá félagsstarfsemi.
Fóðurforðábúramálið. Um það hefir Búnaðarritið
flutt hverja greinina af annari eftir Torfa í Ólafsdal,
eggjandi menn til framkvæmda, og Guðmundur landlæknir
Björnsson heflr nú í vetur með snjöllu erindi reynt að
vekja menn til athygli á voðanum, sem yfir voflr, ef
ekkert er að gert. Og er félagið að sjálfsögðu þeim