Búnaðarrit - 01.01.1913, Page 277
BÚNAÐARRIT
273
En vér búumst ekki við, að svo verði árin 1914 og
1915. Vér teljum nú nauðsynlegt, að geta hækkað
þennan gjaldalið fyrir þau ár um 500 kr. hvort árið, upp
í 8000 kr. Ber það einkum til, að nautgripafélögum
þarf að fjölga og sömuleiðis kynbótabúum sauðfjár.
Nautgriparæktunarfélögin fá í ársstyrk 1 kr. 50 a. fyrir
hverja kú félagsmanna, sem fullnægjandi skýrsla er gefin
um, og sauðfjárkynbótabúin fá flestöll 200 kr. styrk á
ári, fyrstu árin 5 að minsta kosti. Þætti oss illa fara,
að verða að synja um fjölgun þeirra, ef hentugir menn
bjóðast til að hafa þau, vegna fjárskorts.
Eins og getið er um í bréfi voru til stjórnarráðsins
26. sept. 1910 fór það ár fram aðalaðgerð á mjólkur-
skólahúsinu á Hvítávvöllum, sem kostaði hátt á 3. þús-
und króna. Ekki fórum vér fram á sérstaka fjárveitingu
til þess úr landssjóði, af því að vér gátum þá komist
fram úr því án þess. En nú þarf nauðsynlega að gera
við mjólkurskálann og breyta honum. Gerum vér ráð
fyrir að það muni kosta 1000 kr. Vér höfum lagt drög
fyrir sundurliðaða áætlun, en höfum ekki fengið hana
enn. Munum vér senda hana er hún kemur. Af því
að vér sjáum nú ekki tök á að greiða þennan kostnað
af öðrum tekjum félagsins, vildum vér mega fara fram
á, að félaginu yrði veittar til viðgerðar mjólkurskálans
1000 kr. fyrra árið.
Um önnur atriði leyfum vér oss að vísa til bréfs
vors 26. sept. 1910.
Af framantölduin ástæðum vildum vér mega fara
þess á leit, að tillagið til félagsins hækki um 3000 kr.
fyrra árið og 2000 kr. hið síðara og verði 57000 kr. og
56000 kr. Skulum vér geta þess, að búnaðarþingið 1911
taldi ekki verða komist hjá, að fara fram á 2000 kr.
hækkun hvort árið, en þá var ekki kunnugt orðið um
þörfina á viðgerðinni á mjólkurskálanum.
Þótt ekki komi það við fjárframlögum til búnaðar-
félagsins vildum vór mega endurtaka tillögu vora í bréfi
18