Búnaðarrit - 01.01.1913, Page 281
BÚNAÐARRIT
277
manna til að vinna ýms þau verk, sem ráðunauturinn
hefði annars haft á hendi. Ætlum vér tii þess 1200
kr. Hugsum vér oss, að Sigurður búfræðingur Sigurðs-
son ieysi af hendi þau af störfunum, sem hann getur
sint auk sinna venjulegu starfa, og fái fyrir það 400 kr.
þóknun um árið. En 800 kr. ætlum vér til annarar
aðstoðar, og í þeim 800 kr. ætlumst vór til að felist
ferðakostnaður aðstoðarmannanna. Færum vér svo
gjaldl. 4. (ferðakostnað) niður í 1400 kr. Á þennan hátt
er reynt að spara samtals 1000 kr., og sjáum vér ekki
önnur ráð til að geta fullnægt öðrum kröfum án þess
að minka of mikið fé það, sem verja má til að styrkja
ýms ræktunarfyrirtæki (gjaldl. 6. a.).
Gjaldl. 5. hækkum vér um 200 kr. Af honum
ætlum vér sem áður 600 kr. hvort árið til að gefa út
1 hefti af jarðyrkjubók. En hækkunin byggist á því,
að um árslok 1911 hækkuðu allar prentsmiðjur hér
borgun fyrir prentun. Fyrir Búnaðarritið nemur sú
hækkun 5 krónum á örk, eða þó nokkru meira, þegar
ýmsar aukaborganir eru taldar með. Frá ársbyrjun 1912
hefir i Búnaðarritinu verið talsvert betri pappír en áður,
sem ekki var vanþörf á, og þá líka dýrari, og auk þess
hefir upplagið verið stækkað, og svo verður enn gert frá
næstu áramótum, vegna mikillar félagafjölgunar. Til
ársloka 1911 var upplagið 1200, er nú 1400, en verður
frá næsta .nýjári 1600. Við þetta hvorttveggja, er síðast
er talið, félagafjölgunina og það að pappírinn er betri
(þyngri), eykst og að mun kostnaðurinn við að senda
ritið. Viðbótarkostnað þennan allan teljum vér 200 kr.
Gjaldl. 6. a. hötum vér orðið að lækka um 800 kr.
fyrra árið og 100 kr. síðara árið frá því sem var á
áætluninni 1912 og 1913, og verður þó að gera ráð
fyrir, að af þessum lið verði greiddur styrkur sá, sem
vér búumst við að búnaðarþingið muni veita Búnaðar-
sambandi Kjalarnesþings. Vér viljum ekki að svo stöddu
stinga upp á neinni tiltekinni fjárhæð til þess, af þvi að