Búnaðarrit - 01.01.1913, Page 285
Búnaðarþing 1913
I. Fundargerðir.
1. f u n d u r .
Áiið 1913 föstudaginn 27. júní um hádegi var
búnaðarþingið sett.
1. Forseti skýrði frá fulltrúakosningu á sýslunefndar-
fundum 1912 (sbr. Búnaðarrit 1912, bls. 339) og á aðal-
fundi 1913 (sbr. Búnaðarrit þ, á. bls. 246) og lagði fram
kosningaskýrslurnar. Yoru kosningarnar allar teknar
gildar.
Gunnar hreppstjóri Pálsson á Ketilsstöðum hafði
skýrt frá því, að hann gæti ekki komið því við, að sækja
búnaðarþing, og hafði þá varafulltrúinn, er kosinn hafði
verið samtímis honum, Benedikt kennari Blöndal á Eið-
um, verið tilkvaddur í hans stað.
Á þessu búnaðarþingi áttu því sæti:
Ágúst Helgason, bóndi í Birtingaholti,
Ásgeir Bjarnason, bóndi í Knararnesi,
Benedikt Blöndal, kennari á Eiðum,
Björn Bjarnarson, hreppstjóri í Grafarholti,
Eggert Briem, bóndi í Reykjavík,
Gísli Högnason, póstafgreiðslumaður á Búðum,
Guðjón Guðlaugsson, kaupfélagsstjóri á Hólmavík,
Guðmundur Helgason, búnaðarfélágsforseti í Reykjavík,
Jón Jónatansson, búfræðingur á Ásgautsstöðum,
Pétur Jónsson, umboðsmaður á Gautlöndum,
Stefán Stefánsson, skólameistari á Akureyri,
Þórhallur Bjarnarson, biskup í Reykjavík.