Búnaðarrit - 01.01.1913, Page 334
330
BÚNAÐARRIT
urrófum og bortfeldskum rófum. Þeim var sáð í júníbyrj-
un. Af fóðurrófunum var sáð 7 tegundum. Pær spruttu
misjafnt, sumstaðar mjög vel og sumstaðar mjög illa. Staf-
aði liin mismunandi spretta vafalaust fyrst og fremst af
pví, að jarðvegurinn var afar-misjafn að gæðum og mis-
jafnlega myldinn. í alt þetta stykki hafði aðeins einu sinni
verið sáð höfrum. Enn má geta þess, að óhætt mun að
segja, að öllum fóðurrófunum hefir verið sáð ofseint:
Jörðin orðin of þur og þurkarnir eftir sáninguna hnekt
spírun og vexti.
Ohætt mun að segja það, að hér á Vestfjörðum, eða að
minsta kosti í sveitunum umhverfis ísafjarðardjúp, mun
rófum yfirleitt vera sáð of seint. Veðurátta í þessum sveit-
um er þann veg, að síðari hluta vors og fyrri part sumars
eru oft Iátlausir þurkar. Menn þurfa þvi að sá eins fljótt
og unt er, og svo snemma að fræið sé komið upp og spír-
urnar búnar að festa vel rætur áður en þurkarnir byrja
og jörðin orðin alt of þur. Reyndar gela kuldar komið
og hnekt vexti, en minni hætta mun stafa af þeim lieldur
en af þurkunum.
Sökum hinnar misjöfnu sprettu á fóðurrófunum er ekki
hægt að hirta neitt áreiðanlegt yfirlit yfir þessar tilraunir,
þótt þær að mörgu ieyti gæfu mikilsverðar bendingar.
t’eim verður haldið áfram og þá hægt að gefa ábyggilega
skýrslu um þær.
4. í nái. 11 /2 dagsláttu syðst í stöðinni var sáð liöfrum,
og höfrum og byggi blönduðu saman. Mestur hluti þessa
iands var forblault mýrarsund, er byrjað var á að taka
það til ræktunar. Jarðvegurinn hefir því verið svo ótúinn
og tyrfinn, að ekki hefir verið hægt að sá i liann fyr.
Hafrarnir og byggið spruttu mjög vel. Grasið víða nær 2
ájna liátt og þétt að sama skapi. Iiefði grasið verið slegið
á lientugum tima, þá mun óhætt að segja, að grasþurt
hefði það viktað 5—6 þús. kg. af dagsláttu hverri. En
sökum þess að draga verður að slá það, þar til farið er að
gefa kúm, þá rýrnar það nokkuð. En það horgar sig samt
vel, því með því móti fæst miklu betra verð fyrir það en
annars, ef það þarf að þurka það.
5. Sáð var 9 tegundum af grasfræi og einnig grasfræi