Búnaðarrit - 01.01.1933, Page 22
lö
B Ú N A Ð A R R I T
Tvöfalt bókhald er því mikið notað, einkum þar sem
reikningshaldið er margbrotið. Hið einfalda bókhald er
þó algengara og alþekktara úr daglega lífinu, t. d. af
venjulegum verzlunarreikningum, reikningum smáfélaga
o. s. frv. Tvöfalt bókhald er talið uppfundið af ítölskum
munk að nafni Luco Pacciolo, og birti hann það í fyrsta
sinn árið 1494. Það er því.einnig stundum kallað ítalskt
bókhald.
Þessir búreikningar eru færðir eftir tvöföldu bókhaldi
(dagbókin).
Þegar notað er einfalt bókhald er það ekki nauðsyn-
legt að nota sérstök form, og mun upphaflega ekki hafa
verið gert, en nú tíðkast það þó, svo sem að ofan getur.
Hér á eftir skal sýndur reikningur, tekinn úr dönsk-
um búreikningum, færður eftir einföldu bókhaldi, án
forms, og tvöföldu bókhaldi, þar sem hann er meira
sundurliðaður og allsstaðar vísað til þeirra reikninga,
sem viðskiptin hafa orðið við.
Matreiðslureikningur.
a. Einfalt bókhald.
Tek i ö á mól i:
1. Matvara og laun................................ kr. 2010,70
2. Vörur frá búinu.................................. — 1540,64
3. Eldiviður úr skóginum ........................... — 130,00
4. Rentur af innanhúseignum og forða ............... — 60,10
5. Húsaleiga........................................ — 241,72
6. Eignir minnkað um................................ — 27,00
Samtals kr. 4010,1.6
Q oldið:
1. Fvrir fæði handa hermönnum..................... kr. 24,64
2. Fyrir hirðingu alifugla ......................... — 150,50
3. Fæði handa smiðum ............................... — 15,50
4. Fæði gesta....................................... — 240,20
Samtals kr. 430,84
Mismunur kr. 3579,32
Tala karlmannsfæðisdaga 2081
3579,32 : 2081 = 1,72 kr. fæði á dag.