Búnaðarrit - 01.01.1933, Síða 27
BUNAÐARRIT
21
1931. Þar við leggjast umbætur á árinu, kr. 140,50, en
dregst frá fyrning, kr. 53,54. Bókfært verð hækkar því
um kr. 86,96. Árið 1932 yrði svo fyrningin kr. 107,00
o. s. frv. Hún yrði venjulega svipuð frá ári til árs.
2. Vélar, verkfæri, innanhúsmunir o. fl. ber
að virða eftir kaupverði, að frádreginni fyrningu. Hin
stærri áhöld eru þá virt hvert í sínu lagi, en smærri
áhöld í flokkum, með áætluðu meðalverði á hverri
einingu. Oft er örðugt að áætla fyrninguna, því að end-
ingin er í byrjun óþekkt. Segjum t. d. að sláttuvél hafi
kostað kr. 400,00. Gerum ráð fyrir, að hún endist i 12
ár og sé þá kr. 40,00 virði. Fyrningin verður þá alls
kr. 360,00 eða kr. 30,00 á ári (auk venjulegra viðgerða).
3. Búfá er ýmist virt í flokkum eða hver einstakur
gripur fyrir sig. Sauðfé og þar sem margt er um hross
og nautgripi er virt í flokkum. Geta þeir verið fleiri eða
færri eftir vild. Verðbreyíingar koma þá fram á gæðum
hvers einstaklings við það, að hann er færður úr einum
flokki í annan. Verð á gemling hækkar t. d., þegar hann
er fiuttur upp í ærflokkinn. Og séu ærflokkarnir fleiri,
lækkar síðar verð þess sama einstaklings við það, að
vera fluttur úr bezta ærflokki upp í annan eða þriðja
o. s. frv.
Þar sem fátt er af hrossum og kúm, má virða hvern
einstakling út af fyrir sig eftir aldri og gæðum. Fer þá
verðið fyrst hækkandi, þar til bezta aldri er náð, en úr
því lækkar það — fyrning. Dæmi: Sé gert ráð fyrir, að
hestur geti lifað í 10 ár eftir að hafa náð hámarksverði
— kr. 250,00 — og að afsláttarverð hans sé áætlað kr.
100,00, þá þarf alls að skrifa af verði hans kr. 150,00
eða kr. 15,00 á ári.
4. Hey má virða á fleiri vegu:
a. Eftir markaðsverði. Þessi aðferð getur verið rétt-
mæt í nánd við stóra kaupstaði eða annarstaðar, þar
sem stöðugur markaður er fyrir hey og bændur selja
það að staðaldri og í allstórum stíl. En víðast hvar hefir