Búnaðarrit - 01.01.1933, Blaðsíða 45
B Ú N A Ð A R R I T
.39
atvinnurekendur, verða að sundurliða sjóðreikninginn á
annan hátt. Tekjum þeirra er venjulega ekki hægt að
skipta mikið. Aðallega eru þær vinnulaun. Þeir, sem
eiga sauðfé, þurfa að hafa sérstakan dálk fyrir það,
bæði tekju- og gjaldamegin o. s. frv. Gjöldunum má
skipta á ýmsan hátt eftir ástæðum (sjá formið á bls. 40).
í forminu, sem hér fylgir með, er tekjunum skipt í:
vinnulaun, sauðfé og ymislegt (seldir munir o. fl.), en
sjöldunum er skipt í: bækur og ritföng, sauðfé, skemmt-
anir, óþarfi, föt, ferðalög og ýmislegt
Hver upphæð er nú færð tvisvar. Fyrst í annanhvorn
fremstu dálkanna — tekjur, gjöld — á sama hátt og í
einföldum sjóðreikning, en síðan í þann smádálkinn fyrir
aftan, sem við á.
Sjóðreikningurinn byrjar með >í sjóði* og færist sú
upphæð að eins í fremsta tekjudálk. Þá er keyptur-
pappír og blek fyrir kr. 1,50. Það færist gjaldamegin
fremst, en einnig í dálkinn aftar í forminu með yfir-
skriftinni: Bækur og ritföng. Keyptir vindlar kr. 5,00
færist gjaldamegin fremst og í dálkinn: Óþarfi. Keyptur
reiðjakki kr. 30,00 færist í gjaldadálk fremst og í dálk-
inn: Föt. Kr. 40,00 upp í vinnulaun færist sem tekjur
fremst og í vinnulauna-dálk. Teknir peningar úr spari-
sjóði færist sem tekjur fremst og í ýmsar tekjur. — Að
síðustu er fundinn jöfnuður hér, kr. 106,50, og fært
SÍaldamegin fremst, eins og venja er til. Með því nú að
leggja saman alla smádálka tekna og bæta þar við pen-
ingum í sjóði við reikningsbyrjun, á að fást sama upphæð
og í smádálkum gialda + peningar í sjóði við reikningslok.
Hér fæst: 40,00 + 105,00 + 50,00-= 195,00 og 11,50 +
30,00+ 8,00+ 5.00+ 31,00 + 3,00+ 106,50 = 195,00.
Sundurliðaðan sjóðreikning, líkt og formið, geta
bændur fært fyrir sig, án þess að láta koma búinu við.
Þegar einstakir smádálkar eru lagðir saman sézt
greinilega hvaðan tekjurnar koma og hvert þær fara.
Þar hafa menn í mjög góðu yfirliti glöggar upplýsingar