Búnaðarrit - 01.01.1933, Page 64
58
BÚNAÐARRIT
Alls eru þennan mánuð (júní) unnar 525 kl.st. hjá
karlmönnum, 320 hjá kvenfólki og 160 hjá liðléttingi.
Nú liggur næst fyrir að ákveða kaupið þennan mánuð.
Er það og auðvelt, þegar verkamenn eru ráðnir upp á
viku- eða mánaðarlaun, en þar sem um árskaup er að
ræða verður að áætla mánaðarlaunin, bæði með tilliti
til þess og gangverðs á vinnu á hverjum tíma. Bóndinn
og konan verða og að ákveða kaup sitt í hlutfalli við
vinnulaun verkafólks og er þá oft sanngjarnt að setja
það í hærra lagi, en þó fer það eftir kringumstæðum
(sjá síðar, í kaflanum um bústjórnarlaun).
Kaup vinnumannsins er hér áætlað kr. 80,001) þennan
mánuð, .en bóndans kr. 93,251), samtals kr. 173.25.
Þennan mánuð hafa karlmenn unnið alls 525 kl.st. Kaup-
ið á kl.st. verður þá 173,25 : 525 = 0,33 kr. Er nú
auðvelt að finna, hvað hver búgrein á að bera af vinnu-
laununum, með því að margfalda unninn kl.st.-fjölda
þeirra með þessu meðalverði. Hjá fasteign hafa t. d.
verið unnar 15 kl.st. 15 X 0,33 = 4,95 o. s. frv.
Á sama hátt er farið að með húsmóðurina, en liðlétt-
ingur kemur ekki til greina í þessu sambandi, þar sem
hann hefir ekki kaup annað en fæði.
Ársyfirlit yfir vinnu er strikað nákvæmlega á sama
hátt og mánaðarskýrslan, en forminu er skipt í miðju.
í fremsta dálk eru mánuðir í stað mánaðardaga.
/ efri hlutanum er vinnan talin í krónum. Tölurnar
eru teknar beint úr mánaðarskýrslunum. T. d. sjást í
forminu tölurnar fyrir júní færðar inn. I þverdálkinum
»alls« neðst sést við áramót, hvern hluta hinum einstöku
búgreinum ber af vinnulaunum allt árið. Árskaup karl-
manna er hér talið alls kr. 920,60. Vinnumanninum eru
reiknaðar kr. 400.00, en bóndanum kr. 520,60. Þar af
ber fasteign kr. 13,00, verkfæri kr. 6,00, matreiðsla kr.
1) Þetta kaup er raunar of hátt samanborið við árskaupið. En
það hefir enga þyðingu í þessu tilbúna dæmi.