Búnaðarrit - 01.01.1933, Page 113
B Ú N A Ð A R R I T
103
á Sámsstöðum, voru alls ófullnægjandi fyrir þá starfsemi,
sem þar er nú orðin og væntanlega verður í framtíðinni.
Stjórnin áskyldi sér þó rétt til að stöðva byggingarfram-
kvæmdirnar, hvenær sem væri, ef það yrði ofvaxið fjár-
hag félagsins að halda þeim áfram, og forstjórinn bauðst
til að lána alla vinnu allt að 6000 kr., ef á þyrfti að'
halda. Nú þurfti til hvorugs þessa að taka, og var bygg-
ingunni haldið áfram til ársloka og allur byggingarkostn-
aður greiddur, eða alls á s.l, ári kr. 21745,38. Auk þess
hafði verið kostað til byggingarinnar árið 1931 nálega
kr. 1000,00, og eru þá alls komnar í bygginguna um
23 þús. krónur.
Alls hafa gjöld grasfræræktarstöðvarinnar árin 1931
og 1932 orðið um 50 þús. kr., en voru áætlaðar á
Ðúnaðarþíngi kr. 33240,00. Hafa þannig farið 19 þús.
kr. fram úr áætlun, að húsbyggingarkostnaðinum með-
töldum. Byggingin er að vísu ekki fullger, en vamtan-
lega verður hægt að fullgera hana á þessu ári, og þá
hefir stöðin fengið íbúðarhús, sem hún getur vonandi
lengi búið að, og notið sín við. Um gerð hússins vísast
til skýrslu Klemensar.
5. Búpetiingsræktin. Bæði þessi ár hefir félagið unnið
að búpeningsræktinni á sama grundvelli og áður, og er
reglum fyrir styrk og verðlaunaveitingum til hennar
nokkuð lýst, í síðustu skýrslu minni um starfsemi félags-
ins, svo að óþarfi er að endurtaka það hér.
Hinn 1. jan. 1932 gengu í gildi lög nr. 32, 8. sept.
1931 um búfjárrækt, og með þeim eru nú lögfestar
styrk- og verðlaunaveitingarnar til búfjárræktarinnar —
að mestu leyti hinar sömu sem áður hafði verið hjá
félaginu. f>ó eru sumar fjárveitingarnar hækkaðar — eink-
um styrkurinn til sauðfjárræktarbúanna og fóðurstyrkur,
sem áður var enginn, er nú veittur á I. og II. verðlauna-
naut og fyrir stóðhesta, er hlotið hafa I. verðlaun fyrir
afkvæmi sín á afkvæmasýningum.