Búnaðarrit - 01.01.1933, Page 145
BÚNAÐARRIT
135
Ég hafði hugsað mér að verðlauna ekki með III.
verðlaunum hrúta, sem ekki næðu meðaltali viðkomandi
sýslu, hvað mál og þyngd snerti, nema þeir að öðru
Ieyti sköruðu fram úr. Þessu gat ég þó ekki framfylgt,
það var dæmt álíka strangt og -áður, og nothæfir
hrútar hlutu viðurkenningu, enda þótt þeir ekki væru
meðal-kindur.
Sauðfjárræktarbúin starfa eins og áður, en Þórustaða-
búið hefir nú aukið bústofninn og fengið viðbótarstyrk
frá sýslusjóði, Búnaðarsambandi og búnaðarfélagi hrepps-
ins, og er komið inn undir búfjárræktarlögin.
í haust var óvenju mikil sala frá því af kynbótafé,
en ekki er búið það gamalt' að vænta megi, að það fé
sem frá því er selt, reynist alt jafn vel. Skýrsla um
starfsemi búanna, er sýnir samanburð á fénu og arð-
semi þess, birtist hér á næstu bls.
Athygli skal vakin á því að tveir lambhrútar, sinn á
hvoru búi Þórustöðum og Hrafnkellstöðum, reyndust
óvenju þungir eða 125 pd. hvor, og er það sjaldgæfur
lambaþungi. Bráðafár gerði mikinn usla í Höfðabrekku-
búinu, drap 7 lömb um og í réttum og 5 þar á eftir,
eða 12 alls af 34, og er það ekki verra en annars-
staðar þar eystra í haust, en sýnir hve bráðafárið var
skætt á þeim slóðum.
Tilraunum um misjafnan burðartíma á ám, var haldið
áfram í Hvammi í Norðurárdal. Tilrauninni var hagað
eins og áður, og sömu ærnar í flokkunum eftir því sem
hægt var. Haustvigt á ánum er gerð í desember. Eins
og sázt af síðustu skýrslu, voru ærnar haustið 1930
ekki jafn þungar. Meðal fyrirmálsærin var þá 0,9 kg
tvngri. Síðan hefir þessi munur alltaf verið að ágerast,
°9 það er mjög greinilegt að fyrirmálsærnar eru vænni
á haustin, og líka þyngri á vorin í apríl, þegar síðasta
vigtun fer fram.
I ár var þungi ánna sem hér segir: