Búnaðarrit - 01.01.1933, Page 242
232
BÚNAÐARRIT
Mun því mega ælla, að mjólkurmagnið sé nokkru
meira en hér er gert ráð fyrir.
3. Manntalið er tekið samkvæmt manntali 1928.
Nokkur lneyting hefir á þessu orðið, en eigi mun það
valda veruleguin skekkjum.
4. Notkun mjólkur á heimilunum er áætluð 400 litr-
ar pr. einstakling. Þetta er sú mjólk, sem er notuð á
heimilunum til drykkjar, smjör, osta og skyrgerðar,
og er þetta riflega áætlað, eftir því sem gert er ráð
fyrir að notað sé í öðrum löndum. Þar við bætist svo
að mjólkurmagnið er að líkindum lágt áætlað.
5. Afgangs mjólk er sú mjólk sem ætla má að heim-
ilin geti án verið, og mætti því senda til mjólkurbúa
eða selja á annan hátt. Nú er svo ástatt, að í mörgum
héruðum, einkum í hæjum, er vöntun á mjólk, en ann-
arsstaðar nokkuð til ofurs. Þá þetta er jafnað sam-
kvæmt skýrslu þeirri, sem hér er prentuð, verður hinn
raunverulegi afgangur mjólkur aðeins 5,6 millj. lítra.
Reynslan bendir hinsvegar á, að sem sakir standa þá
höfum vér aðeins mjólk og mjólkurafurðir, sem full-
nægi þörfum landsmanna. Með ári hverju fjölgar íbú-
um landsins um 1000—2000 og um leið vex þöri' fyrir
aukna mjólkurframleiðslu. í árslok 1931 er mann-
fjöldinn talinn 109.719 á öllu landinu. Mjólkurþörfin
ætti því að vera 400 x 109.719 = 43,8 millj. 1. og verða
þá aðeins afgangs rúmar 3 millj. lítra mjólkur. Af
þessu er ljóst, að vér jnegum eigi sitja auðum hönd-
um með ræktunina, því þá verður fljótlega vöntun á
mjólk og mjólkurafurðum, þessu nauðsynlegasta
fæðuefni allra fæðuefna, sem þróttur og dáð þjóðar-
innar hyggist að miklu á.
Mælingar og leiðbeiningar viðvíkjandi jarðyrkju
hafa verið meiri en nokkru sinni áður, á þessum ár-
um. Áhuginn fyrir ræktun og umbótum vex með ári
hverju, svo kreppa getur vart stöðvar slíkar fram-
kvæmdir. Skýrslur Pálma Einarssonar og Ásgeirs L.