Búnaðarrit - 01.01.1933, Page 308
BUNAÐ A RR I T
‘298
urræktartilraunir, að eitthvað mætti selja af verkfærum, og
ennfremur ef eitthvað er eftir af eldri tilraunaverkfærum
og kæmi það þá þessum lið til tekna. Nefndin vill enn-
fremur benda á, að ef farið er að smíða þennan um-
talaða tætara til sölu, eru tilraunir þessar ekki síður í
þágu þeirra, sem smíða hann, en Búnaðarfélags íslands,
og má því gera ráð fyrir að Búnaðarfélagið gæti fengið
hann með afslætti. — Verðlaun til Sveinbjarnar ]ónssonar
byggingameistara, fyrir heyskúffu, ætlast nefndin til að
greidd séu af þessum lið, ef hún við reynslu fullnægir
þeim kröfum, sem gert er ráð fyrir.
Gjaldliður 5. Garðyrkja:
Þetta er áætlað eftir samningi stjórnar Bún.fél. íslands
við skólanefnd Laugavatnsskóla. Eftir samningnum er nokk-
uð óákveðið um starfsféð, en nefndin gerir ráð fyrir að
kr. 1200,00 mvndi nægja. Til garðyrkju-námsskeiða hefir
farið nálægt þeirri upphæð sem hér er gert ráð fyrir.
Gjaldliður 6. Fóðurrækt:
Eins og stendur eru þetta leifar frá fyrri starfsemi. Nefnd-
in áætlar að til þess að halda áfram þeim dreifðu tilraunum,
sem þegar eru komnar í gang, muni nægja kr. 1000,00.
Gjaldliður 8, stafl. e.:
Hér er gert ráð fyrir leiðbeiningarstarfsemi í loðdýra-
rækt, hálf laun ráðunautar, og til starfsfjár kr. 1000,00,
og mun verða gerð nánari grein fyrir þessu í framsögu.
Gjaldliður 10. Búnaðarfræðsla:
b.) Skýslur Búnaðarfél. Isl. Kostnaður við útgáfu þeirra
hefir verið nokkuð mikill, og þar sem lítið er selt af þeim,
kemur þar lítið upp í þann kostnað. Samkvæmt viðtali og
upplýsingum ráðunautsins í nautgriparækt, sem árlega hefir
látið prenta skýrslu, upplýsist það, að ef hún væri gefin
út vélrituð, myndi það spara um helming útgáfukostnað-
ar. Hinsvegar myndi rétt að gefa út prentaðar skýrslur
t. d. fimmta hvert ár. Slíkrar yfirlitsskýrslu er nú að vænta
frá fóðurræktar-ráðunaut á þessu ári. Sá nefndin sér því