Búnaðarrit - 01.01.1933, Page 329
BUNAÐARRIT
319
Máli þessu var vísað til jarðræktarnefndar og gerði
Olafur Jónsson grein fyrir tillögum hennar og greinar-
gerð á þskj. 237, svolátandi:
T i 11 a g a:
»Búnaðarþingið samþykkir að heimila stjórn Bún-
aðarfél. Islands, að semja við Jakob H. Líndal um
að framkvæma ýmsar jarðvegsrannsóknir, sem eigi
krefjast neins verulegs staðbundins fjár, og verja
til þessa á fjárhagstímabilinu allt að kr. 1500,00
til áhalda- og efniskaupa, og allt að kr. 1000,00
til starfsfjár hvort árið 1933 og 1934, enda séu
áhöld, er keypt eru fyrir fé félagsins til þessara
rannsókna, eign félagsins, er það getur ráðstafað
eftir geðþótta, þegar ]akob H. Líndal hættir þess-
um rannsóknum, eða þegar Búnaðarþing og Bún-
aðarfél. telur heppilegra að framkvæma þessar
rannsóknir á öðrum stað og undir annara stjórn*.
Greinargerð:
Eins og flestum mun kunnugt, hefir ]akob H. Lín-
dal um all-langt skeið verið talsvert viðriðinn tilrauna-
starfsemi hér á landi og ávalt fylgst mjög vel með í
þeim málum. Fyrir tveim árum fékk hann tækifæri til
að ferðast utanlands og kynna sér tilraunastarfsemi, og
dvaldi þá nokkuð á ýmsum tilraunastöðvum og rann-
sóknastofum, er hafa jarðvegsrannsóknir með höndum.
I erindi sínu fer hann fram á, að Búnaðarþingið veiti
sér nokkurn styrk árin 1933 og 1934, til þess að hann
geti hagnýtt þá þekkingu, er hann hefir aflað sér, og
býðst til að framkvæma nokkrar jarðvegsrannsóknir, sem
hér eru lítið kunnar enn sem komið er, en sem vafa-
laust geta haft talsverða hagfræðilega þýðingu fyrir ís-
lenzka jarðrækt. Rannsóknir þær, sem Jakob hugsar sér
að hafa með höndum, útheimta fyrst og fremst talsverð
áhöld og efni, og svo tírna.