Búnaðarrit - 01.01.1933, Page 332
BÚNAÐARRIT
322
konar uppslætti og einn veggur væri. En nú er það
atriði, sem rannsóknar þyrfti við, hvort ekki mætti bæta
torfið svo, að það yrði enn hæfara til þessarar notkunar,
en það er í náttúrlegu ástandi. Má þar til nefna: 1. Aukna
mótstöðu þess gegn raka, er í það leitar gegnum vegg-
inn. 2. Aukna verndun þess fyrir fúa og eyðingu. 3.
Bætt ásigkomulag þess, að því er snertir hæfni til flutn-
ings og þæginda í notkun við framkvæmd byggingar-
innar. — Nú er óðum að aukast innflutningur á skjól-
plötum til húsagerðar, og kvað innflutningur þeirra hafa
komist upp í 400 þúsund krónur á ári, má þó gera ráð
fyrir að notkun þeirra fari vaxandi, einkum í kaupstöð-
um. Það er því auðséð, að hér er um allmikla fjárhæð
að ræða, sem hægt væri að komast hjá að kaupa frá
útlöndum, ef hægt væri að framleiða í landinu jafn not-
hæft efni, er komið væri í það ástand að vera þrifalegt
í meðförum og hæft til meðferðar sem verzlunarvara.
Auk þess sem framleiðsla slíkrar vöru skapaði atvinnu
í landinu, sem eingöngu kæmi sveitunum til nota.
Endurbygging sveitabæjanna er aðkallandi þörf, er ekki
verður skotið á frest áratugum saman. En það veltur á
miklu, að jafnframt því, sem gerðar eru kröfur um var-
anleikann, að þá sé fundin sem ódýrust gerð, og að hægt
sé að koma þeim upp sem mest með heimafenginni vinnu.
Með því að taka upp steypusteinagerð til tvöfaldrar vegg-
hleðslu, mundi mikið vinnast í þessa átt, steinana mætti
gera smátt og smátt á ódýrum tíma, og vegghleðslan
sjálf er heldur ekki bundin við samstarf einstakra manna
eða uppihaldslítið áframhald og steinsteypu, auk þess
sem þar sparast allt mótatimbur, en aðeins 25 °/o rýrnun
á því,—og mun það sízt of í lagt,— hefir Jóhanni Fr. Krist-
jánssyni byggingarmeistara reiknast til að kostað mundi
hafa V2 miljón króna árið 1929.
En sveitamenn þurfa að fá leiðbeiningar um móta-
gerð fyrir steinana, blöndun á efni í steypuna og nokkra
æfingu, undir handleiðslu kunnáttumanns um það, að hlaða