Búnaðarrit - 01.01.1933, Page 336
326
B Ú X A Ð A R R I T
4. Tillaga frá sama, á þskj. 282, um að haldið verði á
komandi hausti »sameiginlegt námskeið í fitumæling-
um og færzlu búreikninga«. Samþ. með 11:2 atkv.
5. Tillaga, á þskj. 281, um afnám dýrtíðaruppbótar til
starfsmanna félagsins næsta fjárhagstímabil, undirrituð
af ]óni H. Þorbergssyni, Páli Stefánssyni og Magnúsi
Finnbogasyni. Feld með 8 : 4 atkv.
6. Tillaga frá ]óni Sigurðssyni, á þskj. 292, svohljóðandi:
T i 11 a g a :
»Búnaðarþingið telur að nokkuð skorti á að bún-
aðarþingsmenn kynnist svo störfum og starfsháttum
búnaðarsambandanna víðsvegar á landinu, sem þörf
væri á, ályktar það því að skora á stjórn Búnaðar-
félags íslands að koma á þeirri skipan, að hér eftir
verði aðalreikningar sambandanna fjölritaðir og
útbýtt meðal búnaðarþingsfulltrúa í byrjun hvers
Búnaðarþings og jafnframt verði búnaðarþingsfull-
trúum, einum fyrir hvert samband, gefinn kostur á
að flytja stutt erindi eða skýrslu um starfsemi eða
starfshætti sambandsins síðastliðin 2 ár«.
Samþ. með 14 samhlj. atkv.
7. Tillaga frá forseta, á þskj. 297, svohljóðandi:
»Búnaðþingið beinir því til stjórnar Búnaðarfélags
íslands að athuga, hvort eigi sé rétt að fella í verði
forlagsbækur félagsins, fremur en að liggja með stór
upplög þeirra til lengdar*. Samþ. með 13 samhlj.. atkv:
Auk þeirra mála, sem nú eru talin hjá fjárhagsnefnd,
var vísað til hennar máli nr. 40, en það eru tillögur bún-
aðarsambanda um kreppuráðstafanir, þskj. 140—146 og
233. Því máli skilaði fjárhagsnefnd án afgreiðslu til
kreppunefndar, er lagði það með máli nr. 69. Fékk það
afgreiðslu með því, og vísastþvíhér til afgreiðslu þess máls.
Önnur mál, afhent fjárhagsnefnd eru meðal óafgreiddra
mála, þ. e. mál nr. 25, 29, 62 og 66.