Búnaðarrit - 01.01.1933, Page 340
BÚNAÐARRIT
3150
Þetta yfirstandandi ár er þó bændum mun óhagstæð-
ara, og verð áburðarins mun hærra. A þetta að miklu
leyti rót sína að rekja til þess, að Alþingi 1932 dró að
miklum mun úr styrkveitingu til Áburðarverzlunar ríkis-
ins, en vér verðum að líta svo á, að það hafi verið mis-
ráðið af Alþingi að draga úr þessari fjárveitingu, í fyrsta
lagi vegna þess, að örðuleikar þeir, sem landbúnaður-
inn nú á við að stríða, voru fyllilega fyrirsjáanlegir á
þinginu 1932, í öðru lagi getur engum dulist, að styrkur
til landbúnaðarins samkv. II. kafla Jarðræktarlaga er
þegar byrjaður að lækka og muni lækka mjög verulega
í náinni framtíð, vegna minnkandi jarðabóta, og í þriðja
lagi, mjög óheppilegt að rýra þann stuðning til landbún-
aðarins, sem fyrst og fremst miðar að því að viðhalda
þeim ræktunarverðmætum, er skapast hafa í landinu á
undanförnum árum og er fyrsta skilyrðið til þess, að
bændur geti viðhaldið búrekstri sínum og bústofni.
Það er því ekki að ástæðulausu, þótt bændur leiti nú
styrktar og stuðnings ríkisvaldsins til nauðsynlegra kaupa
á tilbúnum áburði, til þess þar með að geta varðveitt
hinn dýrmæta þjóðarauð, hið ræktaða land frá örtröð og
afurðatjóni, en hvorttveggja er í hættu, verði sveltirækt
viðhöfð um lengri eða skemmri tíma.
Nefndinni er kunnugt um, að vegna þess að Áburð-
arverzlun ríkisins skortir rekstursfé á þeim tíma, sem
hentugast er að kaupa áburðinn — og hefir því orðið að
kaupa áburðinn gegn víxlum — hefir á síðastliðnu ári fallið
allmikill kostnaður á áburðarverzlunina, vegna vaxta-
greiðslu og gengistaps. Telur nefndin þetta fyrirkomulag
mjög óheppilegt og vill því leggja áherzlu á, að áburð-
arverzluninni sé tryggt það mikið rekstrarfé, að hún geti
fest kaup á áburðinum á sem heppilegustum tímum og
gegn staðgreiðslu.
Jafnframt því að Alþingi veiti bændum hinn umbeðna
stuðning til áburðarkaupanna, er stór nauðsyn á, vegna
gjaldeyrisvandræða bænda á þessum tíma árs, að til