Búnaðarrit - 01.01.1933, Page 383
BÚNAÐARRIT
373
a. Þskj. 306. Framsögumaður Ólafur Jónsson 0 :
T i 11 a g a:
»Búnaðarþingið samþykkir að mæla eindregið
með frumwarpi því um kreppulánasjóð, er »bænda-
nefndin« hefir samið og lagt fyrir Búnaðarþing til
umsagnar, og skorar á Alþingi að samþykkja frum-
varpið í öllum aðalatriðum eins og nefndin hefir
frá því gengið*.
Greinargerð:
Nefndin hefir reynt eftir föngum að gagnrýna frum-
varp um kreppulánasjóð, er til hennar hefir verið vísað,
og hefir hún reynt að fá upplýsingar og skýringar, á
öllum þeim atriðum í frumvarpinu, er henni hafa fundist
hæpin eða óljós. Eftir þessa rannsókn, sem vegna ófull-
nægjandi tíma er að vísu ófullkomin, hefir nefndin kom-
ist að þeirri niðurstöðu, að frumvarpið í heild sinni inni-
feli svo stórfelda viðreisnarmöguleika og hjálp fyrir
bændastéttina, en hinsvegar svo miklum örðugleikum
bundið að finna leiðir í slíkum málum sem þessum, er
ekkert sé hægt að setja út á, að nefndin telur óráðlegt
að bera fram nokkrar breytingatillögur við frumvarpið,
eða benda á nokkur einstök atriði í því, er breyta þyrfti,
með því líka að um flest þau atriði, er nokkurs tví-
mælis geta orkað, gildir, að þau miða að því að gera
framkvæmdina hraðvirkari, einfaldari og ódýrari, en það
er mikilsvert atriði, er um úrræði sem þessi er að ræða.
Af framangreindum ástæðum vill nefndin leggja það
til, að Búnaðarþingið mæli með frumvarpinu í heild, án
þess að binda sig við einstök atriði þess, og samþykki
ofanskráða tillögu.
1) Að Iokinni framsögu vék Ólafur Jónsson af þinginu, til þess
að komast heim, og tók þá Jón Hannesson saeti í kreppunefnd í
hans stað.